top of page

FYRIRTÆKI

Biddu um tilboð

Á vinnustöðum eru fjölbreyttir hópar fólks sem vinna saman dag eftir dag en það er ekki sjálfgefið að allir nái að hlæja saman. Töfrasýning Einars Aronar er frábær leið til að skapa nýja upplifun, brjóta upp daginn og minna starfsfólk á að gleðin er sameiginleg orka.


Einar Aron hefur mikla reynslu af því að skemmta hjá fyrirtækjum, hvort sem um er að ræða morgunfund, starfsdag, ráðstefnu, árshátíð, staffadjamm eða kvöldviðburð. Hún getur verið á sviði fyrir stóran hóp eða í stofuhorni í minna rými. Markmiðið er alltaf það sama, að byggja upp góða stemningu og vekja gleði og undrun.


Hægt er að tengja þjónustuna við aðra dagskrárliði, til dæmis veislustjórnun, hópefli eða atriði í fordrykk. Einar Aron sér um allan búnað og þarf lítið pláss til að setja upp, þannig að fyrirtækið getur einfaldlega notið skemmtunarinnar.


Að auki býður Tralli.is upp á blöðrudýr, andlitsmálun og jólasveina sem hentar vel á fjölskyldudaga. Einnig lasertag og búbblubolta fyrir hópefli vinnustaðarins. Þannig verður hátíðin fjölbreytt, lífleg og eftirminnileg fyrir alla gesti.

Verð

Biddu um tilboð

bottom of page