
ANDLITSMÁLUN
Hjá okkur starfa tveir andlitsmálarar sem taka að sér andlitsmálun í barnaafmælum og á öðrum viðburðum. Andlitsmálningin er örugg fyrir húðina og auðvelt að ná henni af. Verð eru 25.000 kr. fyrir heimsóknina sem er alla jafna um 60 mínútna löng. Á þeim tíma er hægt að mála um 15 andlit.
Við mætum með allt til alls svo þetta ætti að vera einstaklega þægilegt fyrir ykkur, við þurfum bara afnot af tveimur stólum, það er allt og sumt. Verð fyrir aðra viðburði en barnaafmæli eru 30.000 kr. klst.
Við erum að taka andlitsmálunina okkar í smá yfirhalningu, uppfæra búnað, skerpa á vinnubrögðum og þjálfa fleiri í liðinu. Við viljum einfaldlega gera þetta mjög vel.
Á meðan tekur blöðrudýra-liðið við og sér um að halda stemningunni uppi 🎈
Við gerum ráð fyrir að geta opnað aftur fyrir andlitsmálun haustið 2026.
