
EINAR ARON
Hæ! Ég heiti Einar Aron og er líklega yngsti atvinnu töframaður landsins. Ég legg mikla áherslu á að blanda húmor saman við flott töfrabrögð með það að leiðarljósi að áhorfandinn skemmti sér sem best. Þannig enda ég með flotta og skemmtilega töfrasýningu.
Ég ábyrgist pottþétta skemmtun sem slær í gegn! Ef þú verður fyrir vonbrigðum vil ég vita það og endurgreiði í topp. Þú hefur því í raun engu að tapa.

MEÐ GLEÐI AÐ LEIÐARLJÓSI
SÝNINGIN
Ég hef hef reynslu af öllum gerðum skemmtana, allt frá útihátíðum og brúðkaupum til barnaafmæla og elska að taka að mér ný og skemmtileg verkefni.
Ég er í raun ekki bara töframaður heldur líka eins konar uppistandari því mér finnst skipta meira máli að fólk hafi gaman en að sjá stórfengleg töfrabrögð. Ef gestirnir þínir hlæja og njóta sýningarinnar er markmiði mínu náð.

Börn
Mínar uppáhalds skemmtanir eru fyrir börn, kannski vegna þess að það er svo stutt síðan ég var barn sjálfur. Hér eru upplýsingar um barnaafmæli, leikskóla, grunnskóla, námskeið, blöðrudýr og annað sem við kemur skemmtunum fyrir börn.

Fjölskyldur
Fjölskylduskemmtanir eru í upphaldi hjá mér. Börn eru yndisleg en það jafnast fátt á við að hitta fullorðið fólk líka. Hér eru nánari upplýsingar um fjölskyldudaga fyrirtækja, fermingar, útihátíðir og annars konar skemmtanir fyrir fjölbreyttan aldur áhorfenda.

Fullorðnir
Fullorðinsskemmtanir hafa verið í uppáhaldi síðan ég byrjaði að töfra níu ára gamall. Ég tek að mér skemmanir á vinnustöðum, partýjum, afmælum, árshátíðum, brúðkaupum, skemmtun í fordrykk, meira að segja í brúðkaupum og jarðarförum líka.
SKEMMTUN VIÐ ÖLL TILEFNI
Þú last rétt. VIÐ ÖLL TILEFNI!
Í stórafmæli, vinnustaðaskemmtanir, barnaafmæli, í fordrykk eða standandi veislu, leik,- grunn- og framhaldsskóla, útihátíðir, brúðkaup, jarðarfarir og allt annið líka. Nánari upplýsingar um barnaafmæli má finna HÉR.
