top of page

BRÚÐKAUP

Frá kr. 70.000,-

Brúðkaupsdagurinn er stór dagur þar sem margt er í gangi og gestir úr ólíkum áttum koma saman. Þá skiptir máli að dagskráin flæði vel og stemningin sé létt og skemmtileg frá fyrstu mínútu.


Einar Aron býður upp á þrjár mismunandi leiðir til að bæta töfrum inn í brúðkaupið, allt eftir því hvað hentar hverju pari.


Töfrar í fordrykk

Á meðan gestir safnast saman og bíða eftir brúðhjónunum gengur Einar Aron á milli hópa og sýnir töfrabrögð í nánu samtali. Þetta er einföld og áhrifarík leið til að brjóta ísinn, fá fólk til að tala saman og skapa stemningu strax í upphafi dagsins. Nánari upplýsingar má finna á sér síðu um fordrykk.


Töfrasýning í veislu

Í veislunni sjálfri er hægt að setja inn töfrasýningu sem hluta af dagskránni. Hún brýtur upp ræðurnar, gefur gestum sameiginlega upplifun og skapar hlátur og undrun sem allir taka þátt í. Sýningin er aðlöguð hópnum og passar jafnt fyrir fjölskyldur og fullorðna.


Veislustjórn

Einar Aron býður einnig upp á veislustjórnun þar sem hann heldur utan um dagskrána, kynnir atriði og sér til þess að flæðið haldist gott. Með húmor og lipurð tryggir hann að kvöldið gangi vel og að bæði brúðhjón og gestir geti notið sín. Nánari upplýsingar má finna á sér síðu um veislustjórnun.


Einar hefur þó gaman að nýjum og spennandi verkefnum. Árið 2022 fékk hann bón um að stýra athöfninni sjálfri og tvinna töfrabrögð inn í hana. Parið hafði gift sig í Covid með nánustu fjölskyldu en vildu eitthvað örlítið meira en bara veislu. Þau báðu um stutta athöfn sem endaði á kossi áður en veislan hófst af alvöru. MBL fjallaði um veisluna þeira.


Verð

Frá kr. 70.000,-

bottom of page