top of page

FORDRYKKUR

kr. 60.000,-

Þegar húsið opnar og gestir týnast inn, áður en dagskrá hefst, hittist fólk sem þekkist misvel. Stemningin getur verið róleg og örlítið stíf á meðan beðið er eftir að fleiri mæti.


Einar Aron mætir snemma, gengur á milli gesta og sýnir töfrabrögð í litlum hópum. Markmiðið er að sameina fólk, stytta því stundir og gefa því eitthvað að tala um. Þetta er persónuleg upplifun þar sem töfrarnir gerast beint fyrir framan gestina. Fólk stoppar, hlær, talar saman og tengist á náttúrulegan hátt.


Þetta er einföld leið til að brjóta ísinn og koma stemningunni af stað áður en veislan hefst. Fordrykkurinn verður líflegri þegar eitthvað er í gangi í rýminu, frekar en að fólk standi og bíði.


Töfrabrögð í nálægð henta vel á árshátíðum, í brúðkaupsveislum á meðan beðið er eftir brúðhjónunum, á veitingastöðum og í öðrum aðstæðum þar sem litlir hópar myndast.


Verð

kr. 60.000,-

bottom of page