top of page

ÁRSHÁTÍÐ

Frá kr. 80.000,-

Árshátíð eru eins fjölbreyttar og þær eru margar en markmiðið er yfirleitt það sama: Hrista hópinn saman, þakka fyrir vel unnin störf og fagna fyrirtækinu. Til þess að stemningin verði rétt þarf eitthvað sem sameinar hópinn og heldur orkunni gangandi yfir kvöldið. Þar kemur Einar Aron inn með töfra, húmor og óvænta gleði sem kemur kvöldinu af stað og heldur því lifandi.


Sýningin er létt, fyndin og aðlöguð hverri árshátíð fyrir sig. Hún hentar jafnt sem opnunaratriði eftir matinn, inn á milli ræðna eða sem sérstök uppákoma þegar líða tekur á kvöldið.


Einar Aron blandar saman töfrum og húmor á hátt sem skapar sameiginlega upplifun sem fólk talar um eftir á. Fyrirtæki bóka hann ár eftir ár, enda er hann þekktur fyrir að skapa jákvæða og lifandi stemningu án þess að ganga yfir mörk.


Hann getur tekið að sér mismunandi hlutverk eftir því sem hentar hverju sinni. Sem töframaður kemur hann inn með sýningu sem brýtur upp dagskrána. Sem veislustjóri heldur hann utan um flæðið, kynnir atriði og sér til þess að kvöldið gangi smurt fyrir sig. Í fordrykk gengur hann á milli gesta og sýnir töfrabrögð í litlum hópum þar sem hann brýtur ísinn og kemur stemningunni af stað áður en veislan hefst.


Hann kemur með allan búnað, aðlagar sig rýminu og þarf lítið pláss til að setja upp. Sýningin virkar jafnt á litlum vinnustöðum sem stórum árshátíðum með hundruðum gesta.

Verð

Frá kr. 80.000,-

bottom of page