AFMÆLI

Upplýsingar um þjónustu Einars í barnaafmælum má sjá HÉR.
Afmæli eru oft blandaðir hópar þar sem saman koma fjölskylda og vinir á ólíkum aldri. Þá getur verið erfitt að finna eitthvað sem allir hafa gaman af. Töfrasýning er einföld leið til að fá alla til að taka þátt, hlæja saman og brjóta upp stemninguna í veislunni.
Einar Aron kemur með sýningu sem er aðlöguð hverju afmæli fyrir sig. Í fjölskylduafmælum blandar hann saman léttum húmor og töfrum sem henta bæði börnum og fullorðnum. Í afmælum fullorðinna getur sýningin verið aðeins hraðari, beittari og meira í takt við hópinn.
Sýningin hentar vel sem eitt atriði í dagskránni, hvort sem hún er sett inn snemma í veislunni til að brjóta ísinn eða síðar þegar fólk er komið í gírinn. Hún virkar jafnt í heimahúsum, veislusölum og á veitingastöðum.
Einar Aron kemur með allan búnað og þarf lítið pláss, þannig að undirbúningur er í lágmarki. Fyrir afmæli þar sem börn verða á staðnum er hægt að enda heimsóknina á blöðrudýrum.
Afmæli fyrir fullorðna hafa einnig verið brotin upp með því að bjóða gestum í lasertag.
Verð
Biddu um tilboð
