top of page

Einar Aron

töframaður

Mínar uppáhalds skemmtanir eru fyrir börn, kannski vegna þess að það er svo stutt síðan ég var barn sjálfur. Ég hef mikla reynslu af smáum sem stórum hópum, kann fullt af töfrabrögðum, leikjum og öðru glensi sem þarf í barnaafmæli. Sýningin einkennist af mikilli gleði í bland við flott töfrabrögð.

Ekkert þarf að undirbúa fyrir heimsóknina þar sem ég tek allt með sjálfur. Ég kem með tösku sem nýtist sem borð þegar ég skelli þrífæti undir. Ég þarf alls ekki mikið pláss heldur.

Hægt er að velja á milli fjögurra pakka og töfrasýning er hluti af þeim öllum.

14853281_10154379536114667_80333728925472457_o.jpg

Pakki 1

20 mínútur

kr. 30.000,-

Töfrasýningin er um 20 mínútna löng. Nokkur börn fá að aðstoða Einar Aron en allir krakkarnir fá þó að taka virkan þátt í sýningunni. Athugið að pakki eitt er aðeins fyrir bekkjarafmæli (ekki fjölskyldur eða bekkjarhitting).

Pakki 2

35 mínútur

kr. 40.000,-

Einar Aron mætir á svæðið og sér um 35-40 mínútna dagskrá. Hann byrjar á töfrasýningu og kennir börnunum síðan eitt töfrabragð sem þau geta náð góðum tökum á. Pakki tvö er vinsælastur um þessar mundir. Athugið að pakki tvö er aðeins fyrir bekkjarafmæli (ekki fjölskyldur eða bekkjarhitting).

Pakki 3

Tveggja tíma afmæli

kr. 55.000,-

Einar Aron mætir á svæðið og heldur uppi fjöri í tveggja tíma afmæli. 90 mínútna dagskrá og 30 mínútna matur. Krakkarnir geta átt von á töfrasýningu, blöðrum, dansi, tónlist, leikjum og heilt yfir frábæru fjöri. Allir fá blöðrudýr með sér heim.

Það eina sem þú sérð um eru boðskort og veitingar og sérð til þess að börnin hagi sér vel svo fjörið geti haldið áfram fyrir hina.

Pakki 4

Fjölskylduafmæli

kr. 40.000,-

Sýningin er um 20 mínútna löng en er með örlítið öðruvísi sniði en hinar þar sem hún er hugsuð fyrir gesti á öllum aldri, bæði börn á breiðu aldursbili, unglinga og fullorðna. Í stað þess að trekkja upp galsa meðal bekkjarfélaga er hún hugsuð sem fjölskyldusýning þar sem bæði börn og fullorðnir skemmta sér eins vel og best verður á kosið.

Blöðrudýr

Snúin á staðnum

kr. 30.000,-

Það er gaman að fá blöðrudýr í hendurnar en það er enn skemmtilegra að sjá það snúið fyrir framan þig. Ég býð uppá skemmtileg blöðrudýr sem henta vel fyrir barnaafmælið. Ég kem með allt til alls svo ekkert þarf að hafa fyrir mér. Þetta ætti því að vera einstaklega þægilegt fyrir ykkur.

bottom of page