LASERTAG LEIÐBEINIGAR
Takkarnir á byssunni
Svarti takkinn — Black Button
-
Færir til hægri eða áfram í aðalvalmynd.
-
Hækkar valda tölu eða færir upp í sumum Referee-valmyndum.
Rauði takkinn — Red Button
-
Færir til vinstri eða aftur í aðalvalmynd.
-
Lækkar valda tölu eða færir niður í sumum Referee-valmyndum.
Gikkurinn — Trigger
-
Opnar valmynd.
-
Velur og vistar stillingu.
-
Framkvæmir skipun.
Þegar farið er inn í stillingavalmynd í Editor Mode þarf yfirleitt að fara í gegnum alla valmyndina með gikknum þar til komið er aftur í aðalvalmynd.
Mjög mikilvægt
-
Editor breytir og vistar stillingum.
-
Referee stjórnar leiknum.
-
RF hefur áhrif á margar eða allar byssur.
-
IR hefur áhrif á eina byssu sem miðað er á.
-
RF Clone breytir ekki liði.
-
IR Clone breytir bæði stillingum og liði.
-
Allar byssur í sama leik þurfa sömu RF Channel.
-
Ekki slökkva meðan byssan er að hlaða Editor, Referee eða Player Mode.
Hvernig er kveikt á hverjum ham?
Player Mode
Kveikt venjulega með lyklinum.
Þetta er leikmannahamurinn. Hér spilar leikmaðurinn og skoðar upplýsingar á skjánum. Engum stillingum er breytt hér.
Editor Mode
-
Haltu svarta takkanum inni.
-
Kveiktu á byssunni með lyklinum.
-
Slepptu takkanum þegar Loading Editor birtist.
Notað til að breyta og vista leikstillingum.
Referee Mode
-
Haltu rauða takkanum inni.
-
Kveiktu á byssunni með lyklinum.
-
Slepptu takkanum þegar Loading Referee birtist.
Notað til að ræsa, stöðva og stjórna leikjum.
Ekki slökkva á byssu meðan skynjararnir blikka við ræsingu hams.
Editor Mode — breyta stillingum
Í Editor Mode eru þessar aðalvalmyndir:
Boot Mode
Velur hvaða vistaði prófíll ræsist sjálfkrafa:
-
Sport 1
-
Sport 2
-
Sport 3
Hægt er að vista mismunandi leik undir hverjum Sport-prófíl.
Edit Game
Hér eru sjálfar leikreglurnar:
-
Field ID — leiksvæði A eða B
-
Team ID — Alpha, Bravo, Charlie eða Delta
-
FrndFire — Friendly Fire
-
Unl Mags — ótakmörkuð magasín
-
HitDelay — bið milli þess sem leikmaður getur orðið fyrir skoti
-
Life — lífsstig
-
Shields — skjöldur
-
Shld Lvl — styrkur skjaldar
-
Shld Rgn — endurnýjun skjaldar
-
#Respawn — fjöldi endurkoma
-
AutoResp — sjálfvirk eða handvirk endurkoma
-
GameTime — leiktími
-
DeathDly — tími til að ná í Medic Box eftir útslátt
Notið þessa valmynd þegar breyta á reglum leiksins.
Dæmi: breyta Respawn
-
Kveikið á byssunni í Editor Mode.
-
Farið í Edit Game.
-
Ýtið á gikk.
-
Haldið áfram með gikknum þar til #Respawn birtist.
-
Notið svartan eða rauðan takka til að velja gildi.
-
Ýtið á gikk til að vista og halda áfram.
-
Farið í gegnum restina af valmyndinni þar til komið er aftur út.
Edit Weapon
Hér er stillt hvernig byssan skýtur:
-
IR Mode — Indoor eða Outdoor
-
IR Power — styrkur IR-geisla
-
Sounds — Mil-Sim, Sci-Fi eða Silencer
-
Mag Size — skot í magasíni
-
AutoRld — sjálfvirk endurhleðsla
-
Reload — endurhleðslutími
-
Fire Sel — Semi Auto, Burst eða Full Auto
-
BurstCnt — fjöldi skota í Burst
-
Damage — skaði í hverju skoti
-
Cyclic — skothraði
-
MuzlFlsh — ljósblossi við skot
Notið þessa valmynd þegar breyta á hegðun vopnsins.
Edit Globals
Hér eru almennar stillingar fyrir fjarskipti, hljóð og leikjakassa:
-
RF Chan — RF-rás
-
RF Power — sendistyrkur
-
FB Sound — staðfestingarhljóð
-
FB Style — Adult eða Youth
-
Arcade — Arcade-hamur
-
Volume — hljóðstyrkur
-
Ammo Box
-
Medi Box
-
Flag Box
-
Game Box Stay
-
Game Box RoR
-
Full Ammo RoR
-
Kill LED
-
Muzl LED
-
Backlight
Allar byssur sem eiga að vera í sama leik þurfa að vera á sömu RF Channel.
Set Player ID
Velur nafn og auðkenni byssunnar.
Forðist tvítekin nöfn þar sem það getur valdið ruglingi í stigum og RF-samskiptum.
Run Referee
Fer beint úr Editor yfir í Referee Mode.
Run Player
Fer beint úr Editor yfir í Player Mode.
Referee Mode — stjórna leiknum
Referee Mode skiptist í:
-
RF Cmds
-
RF Clone
-
IR Cmds
-
IR TmChg
-
IR Clone
-
Run Editor
-
Run Player
-
Coms Cfg
RF Cmds — skipun á allar byssur
RF stendur fyrir Radio Frequency.
RF-skipanir hafa áhrif á allar virkar byssur á sömu RF-rás og innan drægis.
Hvernig RF-skipun er framkvæmd
-
Farið í Referee → RF Cmds.
-
Veljið skipun.
-
Ýtið einu sinni á gikk.
-
Þegar Validate birtist, haldið gikknum inni þar til stikan fyllist.
-
Done birtist þegar skipunin hefur verið send.
Skipanir undir RF Cmds
New Game RF
Ræsir nýjan leik á öllum byssum.
End Game RF
Stöðvar leikinn á öllum byssum.
FrndFire Yes RF
Kveikir á Friendly Fire fyrir allar byssur.
FrndFire No RF
Slekkur á Friendly Fire fyrir allar byssur.
Restore Ammo RF
Fyllir aftur á skotfæri allra byssa.
Disarm All RF
Tæmir skotfæri og kemur í veg fyrir að leikmenn geti skotið.
Nuke All RF
Slær allar byssur út í einu.
Restart Clock RF
Endurræsir leiktímann hjá öllum byssum.
Radio Check RF
Prófar hvort RF-samband virki við allar byssur.
RF Clone — afrita stillingar á margar byssur
RF Clone afritar Sport-prófíl úr Referee-byssunni yfir á aðrar byssur.
Hægt er að velja:
-
A = Sport 1 — allar Alpha-byssur
-
B = Sport 1 — allar Bravo-byssur
-
C = Sport 1
-
D = Sport 1
-
* = Sport 1 — allar byssur
Sama er í boði fyrir Sport 2 og Sport 3.
Mikilvægt
RF Clone breytir ekki Team ID.
Það þýðir að Alpha-byssa helst Alpha og Bravo-byssa helst Bravo, þótt þær fái sömu leikstillingar.
Dæmi: setja Sport 1 á allar byssur
-
Stillið Referee-byssuna með réttum Sport 1 prófíl.
-
Farið í Referee → RF Clone.
-
Veljið RF Clone *=Sport1.
-
Framkvæmið og staðfestið skipunina.
-
Ræsið leik með RF Cmds → New Game RF.
IR Cmds — skipun á eina byssu
IR stendur fyrir Infrared.
IR-skipun fer út um hlaupið og hefur aðeins áhrif á þá byssu sem miðað er á.
Hvernig IR-skipun er framkvæmd
-
Farið í Referee → IR Cmds.
-
Veljið skipun.
-
Beinið hlaupi Referee-byssunnar að skynjara markbyssunnar.
-
Ýtið á gikk.
Skipanir undir IR Cmds
New Game IR
Ræsir nýjan leik hjá einni byssu.
End Game IR
Stöðvar leik hjá einni byssu.
Penalty Kill IR
Slær leikmann alveg út og sýnir Game Over.
Stealth Kill IR
Tekur eitt líf af leikmanni án hefðbundinnar refsiaðgerðar.
Respawn IR
Endurlífgar útsleginn leikmann.
Virkar ekki ef leiktíminn er þegar búinn.
Disarm IR
Tæmir skotfæri einnar byssu.
Rearm IR
Gefur byssunni skotfæri aftur eftir Disarm.
Jam IR
Lætur byssuna festast þar til leikmaður hreinsar bilunina.
Til að hreinsa Jam er ýtt samtímis á svarta og rauða takkann.
Stun IR
Gerir leikmann ófæran um að skjóta í fimm sekúndur. Hann getur samt orðið fyrir skoti.
Explode IR
Lætur markbyssuna „springa“.
Restart Clock IR
Endurræsir klukkuna hjá einni byssu.
Sensor Check IR
Prófar byssu- og höfuðskynjara markbyssunnar.
IR TmChg — skipta einum leikmanni um lið
Notað til að færa eina byssu yfir á annað lið:
-
Change To Alpha
-
Change To Bravo
-
Change To Charlie
-
Change To Delta
Framkvæmd
-
Farið í Referee → IR TmChg.
-
Veljið nýtt lið.
-
Beinið að markbyssunni.
-
Ýtið á gikk.
IR Clone — stillingar og lið á eina byssu
IR Clone afritar Sport-prófíl á eina byssu.
Ólíkt RF Clone þá breytir IR Clone einnig Team ID.
Dæmi:
-
IR Clone Sport1/A
Setur Sport 1 stillingar og breytir byssunni í Alpha. -
IR Clone Sport1/B
Setur Sport 1 stillingar og breytir byssunni í Bravo.
Þetta er hentugt þegar ein byssa er vitlaust stillt eða þarf að skipta um lið og prófíl samtímis.
Coms Cfg — samskiptastillingar Referee-byssu
Undir Referee → Coms Cfg eru:
-
IR Mode — Indoor eða Outdoor
-
RF Chan — RF-rás
-
RF Power — sendistyrkur
Referee-byssan verður að vera á sömu RF-rás og byssurnar sem hún á að stjórna.
Algeng verkefni
Ræsa leik
Referee → RF Cmds → New Game RF → Validate
Stöðva leik
Referee → RF Cmds → End Game RF → Validate
Setja sama leik á allar byssur
Referee → RF Clone → *=Sport 1, 2 eða 3
Síðan:
Referee → RF Cmds → New Game RF
Endurlífga einn leikmann
Referee → IR Cmds → Respawn IR
Miðið á byssuna og ýtið á gikk.
Skipta einum leikmanni um lið
Referee → IR TmChg → Change To Alpha/Bravo/Charlie/Delta
Ein byssa er með rangar stillingar
Referee → IR Clone → réttur Sport-prófíll og rétt lið
Allar byssur hætta að hlýða Referee-byssunni
Athugið:
-
Eru allar byssur á sömu RF Chan?
-
Er Radio On?
-
Er Referee-byssan á réttri RF-rás?
-
Prófið RF Cmds → Radio Check RF.
-
Athugið rafhlöðustöðu.
