top of page
hundafjör_edited.png

hundafjör.is

Gleði - Fjör - Fagmennska 

Markmið Hundafjörs er að vera með einkatíma og námskeið fyrir hunda á öllum aldri og eigendur þeirra þar sem unnið verður með grundvallar atriði í hvolpauppeldi, umhverfisþjálfun og grunnhlýðini.

 

Námskeiðin munu byrja í haust en einkatímar eru í boði frá og með ágúst. Nánari skipulag á námskeiðunum verður birt á næstu vikum.

​Námskeið og einkatímar

Hundafjör býður upp á námskeið og einkatíma þar sem hundur og eigandi fá að vaxa saman. Áhersla er lögð á skýr samskipti, traust, grunnhlýðni, hvolpauppeldi, NoseWork og lausnir sem henta hverjum hundi.

Viðburðir á næstunni

Keppni

Keppni í öllum mómentum

26. apríl 2026

Próf

Nosework 1 & 2 - lyktarpróf

7. maí 2026

Grunnnámskeið

NoseWork námskeið á Selfossi

​11. júní kl. 18:00-19:30
16. júní kl. 18:00-19:30
18. júní kl. 18:00-19:00

Fróðleikur og fréttir

Góð fræðsla getur skipt miklu máli í sambandi hunds og eiganda. Hér má finna greinar, ráð og fréttir um hundaþjálfun, hvolpauppeldi, umhverfisþjálfun, NoseWork, búnað og annað sem hjálpar hundum og eigendum að skilja hvort annað betur.

Hundarnir mínir

Á bak við Hundafjör eru margra ára reynsla, ástríða fyrir hundum og sterk tengsl við eigin hunda. Hér má lesa um hundana hennar Jónínu, ræktunina Argos Eyes og sögurnar sem hafa mótað starfið.

Um Hundafjör

Hundafjör er hundaþjálfun í eigu Jónínu Guðmundsdóttur, hundaþjálfara og NoseWork-leiðbeinanda. Markmiðið er að hjálpa hundum og eigendum að byggja upp traust, góð samskipti og skemmtilega samvinnu með gleði, fjöri og fagmennsku að leiðarljósi.

hundafjör_edited.png
  • Facebook
  • Instagram

© 2026 | Hundafjör | ábm. Jónína Guðmundsdóttir

bottom of page