
Kæru Hornfirðingar! Einar Aron hér 👋
Þrátt fyrir mikla hvatningu þegar ég var búsettur á Höfn, setti ég ekki upp neina töfrasýningu á svæðinu. Úr því ætlum við nú að bæta.
Sýningin fer fram á Hafinu (hjartans þakkir) og er um 60 mínútna löng. Hún er fyrir 20 ára og eldri en þannig náum við öðruvísi stemningu, tryggjum viðeigandi töfrabrögð og þar fyrir utan er hægt að ná sér í mjólk í afgreiðslunni.
Hægt er að greiða með bæði posa og pening á staðnum en ég yrði þér þakklátur ef búið verður að ganga frá greiðslu áður, þið komist þá líka fyrr inn í sal. Í fyrra seldist upp og þá eiga seldir miðar forgang.
🔔 Athugið: Bókunarkerfið okkar er frekar heimilislegt. Þið fáið því ekki sjálfvirka staðfestingu strax eftir kaup, en ekki örvænta! Ég sendi ykkur staðfestingu persónulega um leið og ég hef tækifæri til ❤️
Ef þið þurfið reikning megið þið gjarnan senda mér skilaboð og ég græja það um hæl.
Lokað hefur verið fyrir bókanir á netinu en hægt er að greiða með posa á staðnum.
