Töfranámskeið fyrir allar tegundir hópa
Ég býð upp á töfranámskeið sem eru sérsniðið að hæfni aldraðra sem hafa misgóða fingrafimi og getu. Á námskeiðinu munu allir finna eitthvað við sitt hæfi sem þau geta náð góðum tökum á. Ég legg auk þess mikla áherslu á persónuleg tengsl og geng á milli og aðstoða þá sem það þurfa.
Hvert námskeið getur verið allt frá 45 til 90 mínútna langt og fer eftir ykkar þörfum. Einnig er hægt að skipta námskeiðunum upp, t.d. 2x 60 mínútur. Þessir þættir geta meðal annars farið eftir því hvort námskeiðið sé fyrir félagsmiðstöð eldri borgara eða fyrir dagþjálfun.
Á námskeiðinu fá þátttakendur alla nauðsynlega hluti afhenta til eignar. Enginn þarf því að taka neitt með sér.

Öðruvísi töfranámskeið
Ég tek einnig að mér töfranámskeið sem eru sérsniðin að ákveðnum hópum. Sumarið 2021 hélt ég tíu námskeið fyrir eldri borgara. Ég aðstoðaði líka íslenskan geðlækni við að læra töfrabrögð sem hann sýnir skjólstæðingum sínum.
Einnig hef ég haldið kynningu á töfrabrögðum fyrir presta og námskeið fyrir börn og unglinga með fjölþættan vanda.
Fyrri námskeið
Ég setti upp og hélt tíu námskeið fyrir félagsmiðstöðvar eldri borgara á vegum velferðarsviðs Reykjavíkurborgar sumarið 2021.
Hvert námskeið var um 90 mínútna langt og var almenn ánægja með námskeiðið, bæði meðal þátttakenda og starfsmanna.
Námskeiðið vakti mikla athygli og var fjallað um það í fréttatíma Stöðvar 2, Vísi, á Rás 2 og á Rúv.is sem sjá má HÉR. Einnig vöktu þekkingarmiðstöð um farsæla öldrun og Landssamband eldri borgara athygli á námskeiðunum.
Ætlar þú svo að töfra fyrir þitt fólk?
„Já ég geri ráð fyrir því. Ég þarf að fara í sýningartúr.“
-Guðmundur Tryggvi Sigurðsson, 86 ára,
þátttakandi á námskeiðinu

Um Einar Aron
Ég hef starfað sem töframaður frá árinu 2006 og held á milli 100-150 töfrasýningar á ári hverju, fyrir fólk á öllum aldri, í litlum sem stórum hópum.
Hafðu samband hér fyrir neðan til að skipuleggja og fá verðtilboð í námskeið í skólann, frístundina, afmælið, bókasafnið eða hvert sem er.
