top of page

STEGGJANIR OG GÆSANIR

kr. 50.000,-

Steggjanir og gæsanir eru dagar þar sem vinahópurinn kemur saman til að hafa gaman og fagna lífinu framundan. Dagskráin er yfirleitt þétt og margt í gangi, en það getur verið gott að setjast niður, staldra við og njóta stundarinnar saman.


Töfrasýning Einars Aronar hentar vel í þessum aðstæðum. Hann nær góðri tengingu við áhorfendur og blandar saman húmor og skemmtilegum töfrabrögðum í lifandi sýningu. Hann fær hópinn til að hlæja og skapar stemningu án þess að taka yfir dagskrána.


Sýningin hentar jafnt í heimahúsum, í garðinum, á veitingastað eða í sumarbústað og þarf engan sérstakan undirbúning. Einar Aron kemur með allt sem þarf og sér til þess að dagurinn verði skemmtilegri og eftirminnilegri fyrir alla.


Að auki býður Tralli.is upp á lasertag og búbblubolta sem hentar vel fyrir hópa. Þannig verður dagurinn fjölbreyttur, líflegur og eftirminnilegur.

Verð

kr. 50.000,-

bottom of page