top of page
< Til baka

Hvað eru sjónhverfingar?

Töframaður lætur manneskju svífa í lausu lofti, stóran hlut hverfa eða virðist geta farið í gegnum vegg. Það sem áhorfendur sjá virðist stangast á við náttúrulögmálin, en á bak við atriðið liggur úthugsuð aðferð.


Svona atriði eru gjarnan kölluð sjónhverfingar (e. illusions). Þótt orðið geti átt við ýmsar sjónrænar blekkingar er það sérstaklega algengt í töfraheiminum þegar rætt er um stór og umfangsmikil sviðsatriði. Sjónhverfingar geta byggst á sérútbúnum búnaði, lýsingu, sjónarhornum og ýmsum öðrum aðferðum sem vinna saman að því að skapa sannfærandi blekkingu.


Hvað er sjónhverfing?

Sjónhverfing verður til þegar það sem við sjáum, eða teljum okkur sjá, samræmist ekki því sem raunverulega gerist. Töframaður getur til dæmis látið manneskju virðast svífa yfir sviðinu án nokkurs stuðnings. Áhorfendur sjá hana lyftast frá jörðinni en hafa enga sýnilega skýringu á því hvernig það er mögulegt. Þeir upplifa því að eitthvað ómögulegt hafi gerst.


Sjónhverfingar eru þó ekki bundnar við stórar sviðssýningar. Einfalt töfrabragð þar sem peningur virðist hverfa getur líka byggst á því að áhorfendur dragi ranga ályktun af því sem þeir sjá. Munurinn liggur því ekki alltaf í aðferðinni heldur einnig í stærð atriðisins og því hvernig það er sett fram. Í daglegu tali eru sjónhverfingar yfirleitt kallaðar töfrabrögð.


Stórar sjónhverfingar á sviði

Stórar sviðssjónhverfingar eru meðal þekktustu atriða töframanna. Þar má nefna að láta manneskju hverfa úr kassa, láta hluti svífa í lausu lofti eða virðast saga aðstoðarmann í sundur. Slík atriði geta krafist mikils undirbúnings og sérhannaðs búnaðar sem þarf að vera þannig úr garði gerður að áhorfendur sjái það sem þeir eiga að sjá, án þess að geta greint hvernig atriðið er framkvæmt.


Sjónarhorn, lýsing og speglar geta skipt miklu máli í slíkum atriðum. Speglar geta til dæmis falið hluti eða látið þá virðast vera annars staðar en þeir eru, á meðan lýsingin getur beint athygli áhorfenda að ákveðnum hlutum eða haft áhrif á það hvernig þeir skynja umhverfið. Atriði sem virkar fullkomlega fyrir áhorfendur beint fyrir framan sviðið gæti því litið allt öðruvísi út frá hlið eða aftan frá.


Þótt tæknin og búnaðurinn geti verið flókin þarf framsetningin að vera skýr. Áhorfendur verða að skilja hvað á að gerast til að átta sig á því hvers vegna niðurstaðan er ótrúleg.


Kassinn sem pabbi smíðaði

Eitt af fyrstu stóru töfrabrögðunum sem ég sýndi var með kassa sem pabbi minn smíðaði fyrir mig. Ég notaði hann lengi og hann var hluti af mínum fyrstu alvöru töfrasýningum.


Töfrabragðið byggðist á þremur hlutum sem féllu hver ofan í annan. Yst var trékassi sem var hvítur að utan og svartur að innan. Hann var hvorki með botni né toppi og hafði stórt gat framan á sér. Innan í honum var stór niðursuðudós undan grænum baunum sem pabbi hafði pússað og málað svarta. Innst var svo Swiss Miss-dós, einnig máluð svört, sem geymdi silkiklúta og annað sem átti að birtast í töfrabragðinu.


Í upphafi stóðu allir þrír hlutarnir á borðinu, hver innan í öðrum. Ég byrjaði á því að lyfta trékassanum og sýna áhorfendum að hann væri tómur. Þar sem kassinn var opinn í báða enda og með stórt gat framan á honum gat fólk horft í gegnum hann. Síðan setti ég kassann aftur yfir dósirnar og lyfti upp stóru niðursuðudósinni til að sýna að hún væri líka tóm.


Ef áhorfendur horfðu inn í trékassann sáu þeir aðeins svartan flöt. Þeir töldu sig vera að horfa á svartan innvegg kassans, en í raun var það svarta Swiss Miss-dósin sem þeir sáu. Hún féll svo vel inn í umhverfið að þeir áttuðu sig ekki á að þar væri sérstakur hlutur.


Ég setti síðan stóru niðursuðudósina aftur ofan í kassann, yfir Swiss Miss-dósina. Þegar ég stakk hendinni ofan í niðursuðudósina gat ég því dregið upp silkiklúta og aðra hluti sem höfðu verið faldir í minni dósinni. Fyrir áhorfendum virtust hlutirnir birtast úr tóminu, enda höfðu þeir rétt áður séð bæði kassann og niðursuðudósina tóma.


Töfrabrögð og afvegaleiðing (e. misdirection)

Töfrabrögð byggjast ekki eingöngu á því að fela búnað eða nýta sjónarhorn. Afvegaleiðing getur einnig gegnt mikilvægu hlutverki. Töframaðurinn getur til dæmis beint athygli áhorfenda að ákveðnum hluta sviðsins á meðan undirbúningur fer fram annars staðar. Hann getur líka notað tónlist, hreyfingar eða samtal til að skapa væntingar um hvað gerist næst.


Stundum er afvegaleiðingin þó mun lúmskari. Áhorfendur sjá ákveðna hreyfingu en túlka hana ekki sem mikilvægan hluta atriðisins. Þegar sjónhverfing er vel útfærð vinna þessir þættir saman. Búnaðurinn gerir atriðið mögulegt en framsetningin hjálpar til við að skapa upplifunina.


Þarf sjónhverfing að vera stórbrotin?

Þótt stórar sviðssjónhverfingar geti verið glæsilegar eru þær ekki endilega áhrifameiri en einföld töfrabrögð. Manneskja sem sér pening hverfa úr eigin hendi getur upplifað jafnmikla undrun og áhorfandi sem sér stóran hlut hverfa á sviði.


Stærðin ræður því ekki úrslitum. Mikilvægara er að áhorfandinn skilji hvað hann sá og hvers vegna það virðist ómögulegt. Góður töframaður þarf heldur ekki að eiga dýran búnað til að skapa sjónhverfingar. Hugmyndaflug, skilningur á sjónarhornum og góð framkoma geta skipt meira máli en umfang sýningarinnar.


Töfrarnir felast í upplifuninni

Sjónhverfingar minna okkur á að það sem við sjáum er ekki alltaf það sama og það sem raunverulega gerist. Töframenn nýta sér þetta til að skapa atriði sem virðast ómöguleg, hvort sem þeir nota flókinn sviðsbúnað, einfalda hluti eða aðeins sjónarhorn áhorfandans.


Líkt og með önnur töfrabrögð er aðferðin aðeins hluti af heildinni. Það sem gerir sjónhverfingu eftirminnilega er augnablikið þegar áhorfandinn sér eitthvað sem hann getur ekki útskýrt. Þótt hann viti að einhver aðferð liggi að baki getur hann samt leyft sér að undrast.

bottom of page