Útskrift er hátíð sem sameinar fjölskyldur og vini í gleði og stolti. Það er líka dagur þar sem ólíkir hópar, sem þekkjast mismikið, koma saman. Einhverra hluta vegna getur stemningin verið hálf skrítin til að byrja með. Fólk sem þekkist lítið situr saman, sumir eru stressaðir, aðrir feimnir og allir að reyna að halda sér innan ramma veislunnar.
Að okkar mati er því tilvalið að fá töframann í heimsókn. Einar Aron kemur með léttleika, hlátur og töfra sem brjóta ísinn og tengir fólk saman. Sýningin sameinar húmor, gleði og óvæntar uppákomur sem hentar öllum aldurshópum og vekja samstöðu og hlýju. Það er ótrúlegt að sjá hvernig salurinn breytist þegar fólk fær tækifæri til að skemmta sér saman. Þegar amma og gamall bekkjarfélagi sitja hlið við hlið og hlæja af sömu einlægni.
Sýningin hentar öllum útskriftum, hvort sem um er að ræða úr grunnskóla, menntaskóla eða háskóla. Hún er aðlöguð hverjum viðburði og virkar vel í litlum sem stórum hópum, í heimahúsum, veislusölum og á veitingastöðum. Töfrasýningin er sniðin að gestum hverju sinni og er því hægt að velja á milli fjölskyldusýningar eða fullorðinssýningar.
Hægt er að bæta við öðrum skemmtilegum atriðum eftir því sem hentar. Sem dæmi er hægt að bæta við blöðrudýrum fyrir börnin eða veislustjórnun ef dagskráin kallar á meira flæði. Einar Aron sér um allt sem þarf, kemur með allan þann búnað sem þarf og tryggir að ekkert vanti nema góða stemningu.

