top of page

ÚTIHÁTÍÐIR

Einar Aron hefur skemmt á öllum helstu bæjar- og útihátíðum landsins, jafnt stórum sem smáum. Sýningin einkennist af skemmtilegum töfrabrögðum sem henta öllum aldurshópum.

Fáðu verð

Bæjar- og útihátíðir kalla á fjölbreytta skemmtun sem höfðar til alls aldurs, og þar skín Einar Aron í gegn. Með skemmtilegum töfrabrögðum, húmor og mikilli gleði nær hann að fanga athygli bæði barna og fullorðinna og skapa stemningu sem hentar jafnt á stærstu sviðum, á vörubíl eða félagsheimilum.


Einar Aron hefur frá 12 ára aldri verið reglulegur gestur á bæjarhátíðum um allt land. Hann hefur komið fram á sjómannadögum, bæjarhátíðum, 17. júní og öðrum sambærilegum hátíðum. Hann veit hvað virkar þegar fólk kemur og fer, þegar börn hlaupa um og veðrið breytist á fimm mínútum.


Hann hefur tekið að sér 20 og 40 mínútna töfrasýningar og hefur einnig tekið að sér hlutverk kynnis.


Þegar út á land er komið hefur Einar Aron boðið bæjarfélögum upp á að hann taki Tralla trúð eða Askasleiki með sér í bakpoka, gleðigjafa sem birtast á svæðinu annaðhvort fyrir eða eftir töfrasýninguna. Þeir spjalla við yngstu gestina á meðan Einar Aron sér um sviðið og skapa þannig líf og fjör á fleiri stöðum hátíðarinnar. Þetta er einföld og hagkvæm leið til að fá tvö nöfn á dagskrána með einum ferðakostnaði. Svo það fari ekki á milli mála, þá leikur Einar Aron þá báða. Askasleikir fær alla jafna uppfært útlit, í stutterma-peysu og stuttbuxum, eða í blárri lopapeysu á 17. júní (er þá kominn í fánalitina, bláan, rauðan og hvítan).


Þá hefur Einar Aron jafnframt boðið upp á töfranámskeið fyrir börn sem hluti af dagskrá útihátíðarinnar.


Að auki býður Tralli.is upp á blöðrudýr, andlitsmálun, lasertag og búbblubolta sem hentar vel á útihátíðir. Þannig verður hátíðin fjölbreytt, lífleg og eftirminnileg fyrir alla gesti.

bottom of page