top of page

STAFFADJAMM

Töfrar, húmor og stemning í bland. Styrkir stemninguna á staffadjamminu og er frábær ísbrjótur fyrir árshátíðir og sumarfögnuði.

Hér erum við að tala um alvöru staffadjamm, annað hvort bara stakan viðburð eða pre-game fyrir árshátíð eða annan viðburð, og fólk komið í gírinn. Tryggjum að kvöldið verði lifandi og skilji eftir sig eftirminnilega upplifun.


Sýningin er full af stemningu, skemmtilegum töfrabrögðum sem skilur fólk eftir agndofa og hvetur fólk til að hlæja saman, tengjast og slaka á. Hún hentar sem upphitun fyrir kvöldið eða sem sérstakt atriði eftir þegar líða tekur á kvöldið.


Einar Aron aðlagar sýninguna að hópnum og viðburðinum hverju sinni. Hann kemur með allt sem þarf svo fyrirhöfnin er engin. Fyrirtæki og starfsmannafélög sem bóka hann reglulega vita að þetta er áreiðanleg leið til að lífga upp á viðburðinn.


bottom of page