top of page

LEIKSKÓLAR

Töfrasýning fyrir leikskólaaldur breytist í ævintýri fyrir yngstu áhorfendurna. Oft er hópnum skipt í eldri og yngri börn og sýndar tvær sýningar. Hentar einnig vel fyrir útskriftarhópa, allan leikskólann og vorhátíðir.

kr. 80.000,-

Leikskólaheimsóknir er með því skemmtilegasta sem ég tek mér fyrir hendur. Þessum töfrasýningum má yfirleitt skipta upp í tvo flokka, annars vegar sýningar fyrir leikskólabörnin og hins vegar sýningar á vorhátíðum. Hægt er að bóka í forminu neðst á síðunni. Auk þess býð ég upp á jólasveinaheimsóknir, blöðrudýr og andlitsmálun.

Fyrir börnin

Sýningarnar um 20 mínútna langar og eru hannaðar fyrir stuttan einbeitingartíma og mikla þátttöku. Börnin fá að hjálpa til, hrópa, hlæja og upplifa að þau sjálf taki þátt í töfrunum. Oft er hópnum skipt í eldri og yngri börn, svo allir fái sýningu sem hentar þeim. Það má líka sameina allan leikskólann í eina gleðilega stund þar sem allir taka þátt. Hún er fín, en tvær sýningar henta börnunum betur. Verð fyrir eina sýningu er 70.000 kr. og tvær sýningar 100.000 kr.

Vorhátíðir

Töfrasýningar á vorhátíðum eru fjölskylduvænar og henta því börnunum, systkinum þeirra og foreldrum svo allir hafi gaman að. Ég tek allt með á staðinn, bæði borð og hátalara, svo ekkert þarf að hafa fyrir mér. Hátalarinn gengur hann fyrir rafhlöðum og því lítið mál að vera hvar sem er á lóðinni. Verð fyrir sýninguna er 90.000 kr.

Jólasveinaheimsóknir

Hér rétti ég Askasleiki keflið en við þekkjumst ágætlega. Hann heldur úti vefsíðu fyrir sig og fjölskylduna en þar sem lesa má betur um verð, fyrirkomulag og þjónustu. Kíktu yfir HÉR.

Blöðrudýr

Það er gaman að fá blöðrudýr í hendurnar en það er enn skemmtilegra að sjá það snúið fyrir framan sig. Við erum nokkrir sem tökum að okkur að gera blöðrudýr fyrir leikskóla. Oft byrja ég (eða enda) á töfrasýningu og nýti það sem eftir er tímans í blöðrudýr. Stundum mæti ég bara til að gera blöðrudýr og stundum með fleiri með mér. Bókanir og nánari upplýsingar má finna HÉR.

Andlitsmálun

Vinkonur mínar taka að sér andlitsmálun og eru heldur betur flinkar. Þær mæta með allt til alls með sér en þurfa tvo stóla, einn fyrir málarann, hinn fyrir barnið. Bókanir og nánari upplýsingar má finna HÉR



Að auki býður Tralli.is upp á blöðrudýr, andlitsmálun og jólasveina, sem hentar vel fyrir leikskóla. Þannig verður hátíðin fjölbreytt, lífleg og eftirminnileg fyrir alla gesti.



bottom of page