Einar Aron býður upp á stórar sýningar á sal þar sem allur skólinn kemur saman. Þetta eru sýningar sem brjóta upp skólabraginn, skapa sameiginlega upplifun og hentar sérstaklega vel á vorhátíðum, öskudeginum, afmæli skólans, degi íslenskrar tungu, jólaskemmtunum og á öðrum hátíðisdögum.
Einnig er hægt að skipta sýningum niður eftir aldurshópum. Markmiðið er þó alltaf það sama: að sameina hópinn í gleði og skemmtun sem allir geta notið, óháð aldri. Þá geta sýningarnar verið sniðnar að þremur skólastigum:
Yngsta stig:
Litrík töfrabrögð, einfaldur húmor og virk þátttaka nemenda.
Miðstig:
Öðruvísi töfrabrögð sem einkennast af því að nemendur telja sig sjá í gegnum töfrabrögðin eða allt fari forgörðum, en ekki er allt sem sýnist.
Efsta stig:
Þróaðri húmor og töfrabrögð sem henta aldurshópnum vel.
Þá býður Einar Aron upp á stærri fjölskylduvænar skemmtanir þar sem saman koma nemendur, systkini, foreldrar, starfsfólk og jafnvel afar og ömmur. Þessar sýningar henta einkar vel á vorhátíðum og stórum skóladögum og má halda bæði úti og inni, allt eftir aðstæðum.
Að auki býður Tralli.is upp á blöðrudýr, andlitsmálun, jólasveina, lasertag og búbblubolta sem hentar vel fyrir grunnskóla. Þannig verður hátíðin fjölbreytt, lífleg og eftirminnileg fyrir alla gesti.

