top of page

FJÖLSKYLDUDAGAR

Á fjölskyldudögum þarf fjölbreytta skemmtun sem höfðar til allra. Einar Aron mætir með sýningu sem gleður bæði börn og fullorðna. Töfrar, húmor og óvænt atriði skapa samveru sem allir geta notið og muna lengi.

Fjölskyldudagar fyrirtækja eru í miklu uppáhaldi, enda dagurinn til þess fallinn að skapa góða upplifun fyrir fjölskylduna. Það er þó ekki alltaf auðvelt að finna atriði sem hentar öllum aldurshópum.


Einar Aron hefur einstaka hæfileika til að skapa tengsl á milli fólks. Með skemmtilegum töfrabrögðum og miklum húmor fær hann bæði unga og aldna til að hlæja saman og njóta augnabliksins. Hann blandar saman töfrum, húmor og léttleika sem höfðar jafnt til barna, foreldra og afa og ömmu. Sýningin er full af skemmtilegum augnablikum, töfrabrögðum og húmor sem sameinar leikgleði barna og undrun fullorðinna í einni upplifun.


Sýningin hentar vel bæði inni og úti og má auðveldlega aðlaga dagskrá hvers fjölskyldudags svo sýningin henti aðstæðunum. Einar Aron kemur með með allt til alls til að takmarka ykkar fyrirhöfn. Hann getur verið á sviði, gengið á milli hópa eða sameinað hvoru tveggja eftir því sem hentar best.


Að auki býður Tralli.is upp á blöðrudýr, andlitsmálun, jólasveina, lasertag og búbblubolta sem hentar vel á fjölskyldudaga. Þannig verður hátíðin fjölbreytt, lífleg og eftirminnileg fyrir alla gesti.


bottom of page