Á fermingardaginn koma alla jafna saman fjölskyldur úr báðum fjölskyldum foreldra, auk vina og kunningja. Allt fólk sem hittist sjaldan en situr nú við sama borð. Þetta eru falleg tímamót, en oft má finna smá feimni í loftinu þar til einhver brýtur ísinn.
Einar Aron hefur einstaka hæfileika til að skapa tengsl á milli fólks. Með skemmtilegum töfrabrögðum og miklum húmor fær hann bæði unga og aldna til að hlæja saman og njóta augnabliksins. Hans hlutverk er að búa til andrúmsloft þar sem allir slaka á, gleðin tekur yfir og fermingarbarninu líður eins og sannkölluðum heiðursgesti.
Sýningin er létt og fjölskylduvæn og hentar bæði litlum og stórum veislum. Hún er aðlöguð hverjum hópi og virkar vel hvort sem veislan er haldin heima, í sal eða á veitingastað. Einar Aron kemur með með allt til alls til að takmarka ykkar fyrirhöfn.

