Bókasöfn eru staðir fullir af ævintýrum og leggur Einar Aron upp með að bæta við þá upplifun. Ferill Einars hófst að miklu leyti á Amtsbókasafninu á Akureyri þar sem fáir aðrir komust í bækur um töfrabrögð, enda voru þær oft einokaðar. Þar fann hann bækur sem opnuðu nýjan heim og sýndu honum að bak við hvert töfrabragð leyndist saga, hugmynd og sköpunargleði. Þessi reynsla hefur fylgt honum síðan og er ástæðan fyrir því að honum þykir sérstaklega vænt um að koma fram á bókasöfnum. Einar segir gjarnan frá þessum fjársjóði bóka og mikilvægi þess að lesa það sem vekur áhuga.
Sýningarnar eru settar saman fyrir fjölskyldur og sameina skemmtun, fróðleik og undur sem hentar vel í þessu notalega og menningarlega umhverfi.
Einar Aron hefur sýnt töfrabrögð á bókasöfnum víða um land. Sýningarnar henta vel á flestum viðburðum bókasafna, sumaropnunum og jólaviðburðum. Þær þurfa lítið pláss og Einar Aron kemur með allan búnað, þannig að starfsfólk bókasafnsins getur einfaldlega notið þess að sjá salinn fyllast af gleði og hlátri.
Einar Aron hefur jafnframt reglulega haldið töfranámskeið á bókasöfnum víða um land, þar sem börn fá að kynnast grunnatriðum töfranna og uppgötva hvernig forvitni og æfing geta opnað nýjan heim.

