top of page

BEKKJARHITTINGAR

Bekkjarhittingar eru orkumiklir og skiptir máli að börnin hafi eitthvað fyrir stafni. Einar Aron kemur með 20 mínútna töfrasýningu sem hentar bæði börnum og foreldrum þeirra.

kr. 50.000,-

Bekkjarhittingar eru töluvert öðruvísi en barnaafmæli. Bekkurinn (eða árgangurinn) er yfirleitt á sameiginlegum heimavelli þeirra, í skólanum, og oft töluverður galsi í okkar besta fólki. Þar hittast vinir, foreldrar og kennarar í blöndu af hávaða, hlátri og miklu orkustigi en oft getur verið erfitt að halda athyglinni hjá hópi barna sem eru bæði spennt og hávær.

Töfrasýningin kemur þá sterk inn semi fullkomið innslag sem fær bæði börn og fullorðna til að staldra við, hlæja og njóta augnabliksins saman.


Sýningin er yfirleitt um 20 mínútur og full af húmor, þátttöku og skemmtilegum töfrabrögðum. Hún virkar jafn vel í skólastofu og á sal. Börnin taka virkan þátt á meðan foreldrarnir hlæja með og sjá gleðina brjótast fram í augum þeirra.


Þetta er frábær leið til að brjóta upp dagskrána, skapa samstilltari stemningu og tryggja að allir fari heim með jákvæða upplifun. Einar Aron kemur með allt sem þarf – eina töfratösku, hátalara ef þarf, mikla orku og nóg af gleði.


Að auki býður Tralli.is upp á blöðrudýr, andlitsmálun, jólasveina, lasertag og búbblubolta sem hentar vel fyrir grunnskólanemendur.

bottom of page