top of page

ANNAÐ

Einar Aron finnur lausnir á ótrúlegustu verkefnum. Hann hefur komið fram í auglýsingum, tekið á móti gestum á veitingastöðum og jafnvel töfrað í jarðaför. Hvort sem verkefnið er hefðbundið eða óhefðbundið eru allar líkur á að það leysist.

Fáðu verð

Ekki eru öll verkefni eins og það er einmitt það sem gerir þau skemmtileg. Einar Aron hefur tekið þátt í alls konar uppákomum, frá stórum sýningum og auglýsingum til lítilla og persónulegra viðburða þar sem húmor, hlýja og nærvera skipta mestu máli.


Hann hefur tekið á móti gestum á veitingastöðum, komið fram í auglýsingum, tekið þátt í kynningum og jafnvel séð um að létta andrúmsloftið í jarðaförum þar sem fjölskyldan óskaði eftir hlýju og brosi í bland við virðingu. Fyrir Einari Aron er ekkert verkefni of lítið, of skrítið eða of alvarlegt, hann finnur alltaf leið til að láta það virka.


Ef þú ert með hugmynd sem krefst sjarma, töfra eða smá glettni, þá finnur hann lausn sem passar aðstæðum. Hann er fljótur að aðlagast, kemur vel fram við fólk og tryggir að viðburðurinn, myndatakan eða verkefnið verði eftirminnilegt á jákvæðan hátt.


Hér að neðan er örlítið brot af verkefnum sem Einar Aron hefur tekið þátt í undirbúningi og framkvæmd.



FULFIL 2025

FULFIL vantaði góðan mannskap sem er vanur fjallamennsku til að setja upp stöð undir lok Laugarvegshlaupsins. Þar er hlaupið á milli Landmannalauga og Húsadals í Þórsmörk.




OREO 2024-2025

OREO hefur nýtt sér þjónustu okkar við auglýsingaherferðir, m.a. í samstarfi við Minecraft og Pac-man.




Prince Polo - 2023

Prince Polo (eða Prince Jóló) vantaði rótgróna jólasveina til að dreifa Prince Polo í Jólaþorpinu, Hafnarfirði, og var viðburðurinn var nýttur til auglýsingagerðar. Það var þó aðeins brot okkar þátttöku en við sóttum bílinn, undirbjuggum gjafirnar, skiluðum bílnum snyrtilegum til baka í höfuðstöðvar Prince og stungum honum í samband fyrir næsta verkefni.




Arion banki - 2012

Pegasus, sem framleiddi auglýsingu fyrir Arion banka, vantaði handamótel sem kunni að meðhöndla spil. Var Einar Aron því valinn í verkið til að kynna nýtt banka-app Arion banka.



bottom of page