top of page

The Magic Castle

The Magic Castle, eða Töfrakastalinn, er einkaklúbbur töframanna í Los Angeles, Kaliforniu. Kastalinn var fyrst opnaður 2. janúar 1963. Aðeins meðlimir og gestir þeirra er heimilaður aðgangur. Töfrakastalinn dregur nafn sitt af húsinu, sem er kastali og stendur upp á hæð. Húsið var byggt 1909.


Margir af frægustu töframönnum fyrr og síðar, bæði lífs og liðnir, hafa komið fram í kastalanum. Þegar inn er komið tekur á móti þér bar og nokkrar setustofur. Þar er ósýnilegur píanóleikari sem tekur við óskalögum, sem og setustofa Dai Vernon sem sat þar löngum stundum, skemmti og kenndi, allt þar til hann dó 1992. Þar er krukka með ösku jarðneskra leyfa hans, sem situr á hillu.


Þá eru mjög stífar kröfur um klæðaburð, í einföldu máli mæta allir í sínu fínasta pússi, karlar í jakkafötum með bindi og konur í drakt eða kjól. Þá eru strigaskór við jakkaföt, sem hefur tíðkast hérlendis, bannaðir. Allar myndir og myndbönd eru með öllu óheimil sem hjálpar til með upplifun gesta og heldur leyndardóminum.


Þegar komið er að kastalanum, taka öryggisverðir á móti þér sem kanna skilríki, en 21 árs ára aldurstakmark er í Töfrakastalann. Gengið er að gömlum bókaskáp, þú segir orðin „open sesame“ og skápurinn rennur til hliðar svo þú getir gengið inn. Þegar í anddyrrið er komið er bókunin könnuð en heimsókn á þennan sögufræga stað, hefst á kvöldverð á fínum veitingastað. Þá eru töframenn á sveimi, reglulegar töfasýningar, salur sem allir geta fengið að koma fram í og margir sögufrægir munir um allt hús.


Töfratímaritið Genii hefur lengi verið viðloðandi Töfrakastalann. Genii var fyrst gefið út af William Larsen eldri árið 1936. William Larsen yngri tók við útgáfunni eftir andlát föður síns, ásamt eiginkonu sinni og ekkju Larsen eldri. Larsen yngri var meðstofnandi Töfrakastalans.

bottom of page