top of page

Robert Houdin

Jean-Eugène Robert-Houdin, oftast kallaður Robert-Houdin, fæddist í Blois í Frakklandi árið 1805. Hann er oft kallaður faðir nútíma töfralistarinnar vegna þess hversu mikil áhrif hann hafði á það hvernig töframenn komu fram og hvernig töfrasýningar voru byggðar upp. Hann nýtti sér meðal annars vélfræði, klukkuverk, rafmagn og sjálfvirkar vélar við gerð nýrra sjónhverfinga og hjálpaði til við að færa töfrabrögð úr fjölleikahúsum og markaðssýningum yfir í fágaðri leikhússýningar.


Faðir Roberts var klukkusmiður og Robert lærði ungur að vinna með tannhjól, gorma og annan fíngerðan vélbúnað. Faðir hans vildi að hann lærði lögfræði en Robert hafði meiri áhuga á vélfræði og klukkusmíði. Atvik í bókabúð breytti síðan lífi hans. Hann ætlaði að kaupa bók um klukkusmíði en fékk fyrir mistök bækur sem innihéldu kennslu í töfrabrögðum. Hann varð svo heillaður að hann fór strax að æfa sig og sagði síðar að þessi mistök bóksalans hefðu ráðið framtíð hans.


Robert hélt áfram að læra bæði klukkusmíði og töfra og smíðaði jafnframt ýmsar sjálfvirkar vélar og leikföng. Fyrsta opinbera sýning hans í eigin leikhúsi í París var 3. júlí 1845. Sjálfur lýsti hann fyrstu sýningunni sem hálfgerðu slysi; hann var svo stressaður að hann talaði of hratt og framkoman varð ekki eins góð og hann hafði vonast til. Hann gafst þó ekki upp og sýningarnar urðu fljótlega mjög vinsælar.


Robert-Houdin breytti líka útliti töframannsins. Í stað þess að koma fram í litríkum eða dularfullum galdrabúningum klæddist hann eins og vel klæddur herramaður síns tíma, í svörtum kjólfötum. Sýningar hans voru settar upp í glæsilegum sal og töfrarnir áttu að líta út eins og eitthvað ómögulegt væri að gerast mitt í venjulegu umhverfi.


Sonur Roberts, Émile, tók þátt í mörgum frægustu atriðum hans. Í töfrabragðinu Second Sight var bundið fyrir augu sonarins en gat samt lýst hlutum sem áhorfendur réttu föður hans. Robert lét hann einnig svífa í hinu fræga Ethereal Suspension-atriði. Margir áhorfendur töldu slíkar sýningar svo ótrúlegar að þeir veltu fyrir sér hvort eitthvað yfirnáttúrulegt væri að gerast.


Árið 1848 fór Robert-Houdin til Bretlands og sýndi meðal annars fyrir Viktoríu drottningu og Albert prins. Í einu atriðinu fékk hann hanska drottningarinnar lánaðan og framleiddi úr honum blómvönd sem varð sífellt stærri þar til blómin mynduðu nafnið Victoria. Sonur hans sýndi einnig Second Sight fyrir konungsfjölskylduna.


Robert-Houdin skrifaði síðar bækur um töfrabrögð, sviðsframkomu og leyndarmál töfralistarinnar. Hugmyndir hans um náttúrulegar hreyfingar, sviðsframkomu, vélfræði og hvernig töframaður ætti að kynna sig höfðu gríðarleg áhrif á næstu kynslóðir. Harry Houdini dáðist svo mikið að honum sem ungur maður að hann tók sér sviðsnafnið Houdini til heiðurs Robert-Houdin.


Robert-Houdin lést árið 1871, 65 ára gamall. Áhrif hans lifa þó enn í nútíma töfralist og margar hugmyndir sem í dag þykja sjálfsagðar í sviðstöfrum má rekja aftur til hans.

bottom of page