Newmann the Great

C. A. Newmann fæddist árið 1880 og var bandarískur dáleiðari og hugsanalesari (e. mentalist). Hann hélt sína fyrstu sýningu aðeins 13 ára gamall og tók síðar upp sviðsnafnið Newmann the Great. Lengi vel ferðaðist hann milli sömu borga ár eftir ár og hélt sýningar í eigin tjaldi. Hugsanalestur var helsta sérgrein hans, þótt hann sýndi einnig nokkrar stórar sjónhverfingar (illusions) á ferlinum.
Newmann var meðal fyrstu félaga í International Brotherhood of Magicians (I.B.M.) og hafði félagsnúmerið 585.
Á síðari árum kom hann meðal annars fram í háskólum í Minnesota og Norður-Dakóta þar sem hann sýndi dáleiðslu fyrir nemendum í sálfræði. Dáleiðsla hefur lengi verið rannsökuð innan sálfræðinnar og er einnig notuð í ákveðnum aðstæðum innan hennar.
Newmann var mikill bókasafnari og safnaði bókum um töfrabrögð, hugsanalestur, dáleiðslu og skyld efni. Þegar safnið var stærst átti hann um sjö þúsund bækur, sem var eitt stærsta einkasafn sinnar tegundar á þeim tíma. Um tíu árum fyrir andlát sitt byrjaði hann að koma safninu í öruggar hendur. Um eitt þúsund bækur fóru meðal annars til bókasafns Háskólans í Minnesota og safn af sýningarplakötum hans fór til London.
Howard Thurston, sem var vinur Newmanns, sagði hann vera einn besta hugsanalesara allra tíma. Thurston var vissulega ekki hlutlaus dómari, en ummælin gefa samt góða mynd af því áliti sem Newmann naut meðal annarra töframanna.
Vitað er að Newmann hélt enn stórar sýningar árið 1950 og hafði þá starfað við töfra og hugsanalestur í meira en hálfa öld. Hann lést árið 1952, 72 ára gamall.
