top of page

Katrín Jakobsdóttir

Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna, er líka töframaður... eða töfrakona.


Töfraferill hennar hófst á háskólaárunum þegar hún stundaði nám í íslensku við Háskóla Íslands. Á skemmtikvöldum íslenskunema, sem kölluð voru kraptakvöld, var óskað eftir skemmtiatriðum og Katrín ákvað ásamt vinkonu sinni Halldóru Björt Ewen að leggja sitt af mörkum. Þær fóru að læra töfrabrögð og komu reglulega fram saman.


Það sem byrjaði sem skemmtun meðal háskólanema varð að langvarandi áhugamáli. Katrín og Halldóra hafa meðal annars sagað manneskju í sundur, látið fótleggi hverfa, „gubbað“ eggjum og sýnt atriði þar sem Halldóra fór inn í töfrakassa og Katrín stakk átta sverðum í gegnum kassann.


Þær komu fram við ýmis tækifæri og meðal annars á árshátíð Stjórnarráðsins árið 2009. Þar sýndu þær svokallaða gamantöfra (e. comedy magic) og brutu meðal annars úr Jóhönnu Sigurðardóttur, þáverandi forsætisráðherra, og gerðu það heilt aftur.

Katrín og Halldóra sóttu síðar um inngöngu í Hið íslenska töframannagildi. Til að komast inn þurftu þær að mæta á fund félagsins og sýna töfrabragð sem þær höfðu undirbúið sérstaklega. Þær stóðust prófið og árið 2013 urðu þær fyrstu konurnar til að ganga í Gildið.


Katrín sagði síðar að hápunktur töfraferilsins hefði líklega verið þegar þær tóku þátt í töfrasýningu í Salnum í Kópavogi. Hún á meira að segja enn búninginn sem hún notaði í sýningunni og hefur því sjálf bent á að tæknilega séð gæti hún tekið atriðið upp aftur.


Töfrarnir hafa fylgt Katrínu inn í stjórnmálin. Hún hefur stundum sagt frá áhugamálinu erlendis og lýst því hvernig fólk horfi þá á hana eins og hún sé eitthvað skrýtin. Katrín hefur tekið því létt og spurt á móti: „En er ég það ekki bara?“


Hún hefur líka komið fram með töfrabrögð þótt hún hafi gegnt háum embættum. Meðal annars mætti hún eitt sinn á hjúkrunarheimilið Grund og sýndi þar töfra.


Í sjónvarpsþættinum Öll þessi ár sýndi Katrín einnig töfrabragð sem vakti mikla lukku. Páll Magnússon, fyrrverandi útvarpsstjóri RÚV, lýsti atriðinu einfaldlega sem „óviðjafnanlegu“.


Árið 2025 var Katrín útnefnd heiðursfélagi Hins íslenska töframannagildis. Hún var þriðja manneskjan til að hljóta þann heiður. Katrín sagðist hafa orðið mjög snortin af viðurkenningunni og bætti við að hver vissi nema töfrarnir kölluðu hana aftur til sín.



bottom of page