top of page

Jón Aðalbjörn

Jón Aðalbjörn Bjarnason er fæddur árið 1932 og er töframaður frá Ísafirði. Hann var meðal stofnfélaga Hins íslenska töframannagildis árið 2007 og var síðar útnefndur heiðursfélagi nr. 2 í virðingarskyni fyrir störf sín í þágu töfralistarinnar á Íslandi. Hann er betur þekktur sem Jón ljósmyndari en hann rak Ljósmyndastofu Kópavogs um árabil sem þá var sú stærsta á höfuðborgarsvæðinu. Hann var með þeim fyrstu til að framkalla litfilmur úr myndavélum.


Jón lærði töfrabrögð af Dananum Simson sem varði stundum á Ísafirði en hann var sirkúslistamaður. Hann átti sitt eigið sirkústjald og ferðaðist um og setti upp sirkússýningar. Símson var afar vinalegur við Jón og kenndi honum töfrabrögð.


Á 7. áratug síðustu aldar ferðaðist Jón með Baldri Geirmundssyni og einni hljómsveita hans. Þau settu upp skemmtun þar sem var spilað, sungið og töfrað. Jón endaði prógrammið á því að draga bíl með tönnunum sem vóg líklega um tvö og hálft tonn og stundum stóð öll hljómsveitin á bílnum. Á skemmtun í Austurbæjarbíói dró hann heila rútu. Hljómsveitin kom fram þrjú til fjögur kvöld í viku svo nóg var um að vera hjá Jóni.



bottom of page