top of page

Ingó Geirdal

Ingólfur Hjálmar Ragnarsson Geirdal, oftast kallaður Ingó Geirdal eða einfaldlega Ingó, er íslenskur töframaður og tónlistarmaður. Hann fæddist 9. maí 1968 í Reykjavík og hefur fengist við töfrabrögð frá barnæsku. Í gegnum tíðina hefur hann sýnt töfra víða um heim, meðal annars í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu, starfað sem töframaður á skemmtiferðaskipi og komið fram fyrir heimsþekkt tónlistarfólk.


Áhuginn kviknaði mjög snemma en þegar Ingó var um sex ára gamall sá hann brot frá heimsmeistaramóti töframanna í sjónvarpinu. Þar kom fram hollenskur töframaður sem hafði unnið til verðlauna á mótinu. Ingó hafði aldrei séð neitt þessu líkt áður. Hann ákvað á þeirri stund að verða töframaður. Vandamálið var bara að hann hafði ekki hugmynd um hvernig.


Hugmyndin sat þó föst í honum næstu árin. Ingó komst yfir bók með spilagöldrum og fór að æfa sig sjálfur. Þegar hann var tíu ára sá hann Baldur Brjánsson koma fram í sjónvarpinu. Baldur framkvæmdi þar fræga „uppskurðinn“ sinn með berum höndum og sýndi hvernig hægt væri að skapa sömu sjónhverfingu og svokallaðir andalæknar á Filippseyjum höfðu haldið fram að væri yfirnáttúruleg lækning.


Ingó áttaði sig þá á því að á Íslandi væri raunverulegur starfandi töframaður sem hann gæti einfaldlega haft samband við. Hann fann símanúmerið hjá Baldri og hringdi.

„Ég er kollegi þinn og við þurfum að hittast fljótlega og bera saman bækur okkar,“ sagði tíu ára Ingó við einn þekktasta skemmtikraft landsins. Baldri fannst þetta skemmtilegt en tók unga manninn ekki strax mjög alvarlega. Ingó gafst hins vegar ekki upp og hringdi aftur og aftur. Loks áttaði Baldur sig á því að honum var full alvara. Baldur tók Ingó undir sinn verndarvæng.


Ingó sagði síðar að Baldur hefði í raun alið sig upp í töframennskunni. Hann kenndi honum ekki bara töfrabrögð heldur hjálpaði honum að skilja framkomu, vinnubrögð og heim töframanna. Það tók tíma fyrir Baldur að treysta honum fyrir leyndarmálum listarinnar en þeir urðu góðir vinir og komu síðar meðal annars fram saman í sjónvarpi.

Í gegnum Baldur Brjánsson kynntist Ingó einnig Baldri Georgs, töframanninum og búktalaranum sem kom fram með Konna. Baldur Georgs var þá að mestu hættur að koma fram og gaf Ingó stóran hluta af töfrabókasafninu sínu. Bækurnar voru fullar af undirstrikunum og glósum Baldurs og urðu mikilvægur fjársjóður fyrir unga töframanninn.


Ingó las líka sjálfur gríðarlega mikið. Þegar hann var átján ára átti hann um 200 bækur um töfrabrögð og var áskrifandi að fjölda töfratímarita. Hann æfði sig daglega og sagðist helst vilja æfa í nokkrar klukkustundir á dag.


Hann kom fyrst opinberlega fram aðeins tíu ára gamall á skólaskemmtun í Fellaskóla. Skömmu síðar kom hann fram í Stundinni okkar og þegar hann var um tólf ára var hann þegar farinn að skemmta á skemmtistöðum á borð við Hollywood, Skiphól og Þórskaffi.


Það hljómar undarlega í dag að tólf ára barn hafi verið fastbókað á vínveitingastað og komið fram eftir miðnætti, en þannig var ferill Ingós fyrstu árin. Hann sagði síðar að þetta hefði verið mikilvægur skóli. Þar lærði hann að standa fyrir framan ólíka áhorfendur og halda athygli þeirra.


Þegar Ingó var sextán ára var hann farinn að halda stærri og fullmótaðri töfrasýningar. Hann þróaði sín eigin atriði og lagði mikla áherslu á fingrafimi, sviðsframkomu og nákvæma tímasetningu.


Töframaðurinn verður gítarleikari

Um þrettán eða fjórtán ára aldur fékk Ingó nýja hugmynd til að verða betri töframaður.

Hann ætlaði að læra á gítar. Ingó hafði hugsað sér að gítarleikurinn myndi auka hraða og liðleika fingranna og hjálpa honum með tímasetningu í töfrabrögðunum. Í félagsmiðstöðinni Fellahelli var gítar sem krakkarnir máttu nota og Ingó byrjaði að æfa.

Gítarinn varð fljótlega meira en bara æfingatæki fyrir töframann. Ingó varð einnig tónlistarmaður.


Hann lærði klassískan gítarleik og stofnaði hljómsveitina Paranoid sem síðar varð Gypsy. Hljómsveitin vann Músíktilraunir árið 1985. Síðar lék Ingó meðal annars með Stripshow, Quarashi og Dimmu og hefur einnig spilað með fyrrverandi meðlimum hljómsveitarinnar Alice Cooper.


Töfrarnir og rokkið urðu smám saman að tveimur hliðum á sama listamanninum. Ingó hefur sjálfur bent á að bæði séu sviðslistir: í báðum tilfellum þurfi að segja sögu, stjórna tímasetningu og tengjast áhorfandanum.


Hann hætti því smám saman að líta út eins og hefðbundinn töframaður í jakkafötum. Hann fór að koma fram í leðurfötunum, göddunum og rokkstílnum sem hann notaði á tónleikum. Töfrasýningarnar urðu þannig meira og meira hans eigin.


Út í heim

Árið 1986, aðeins átján ára gamall, fór Ingó á Nordisk Magi-Kongress í Stokkhólmi og kom þar fram fyrir aðra töframenn. Hann sýndi eigin atriði og fékk góðar undirtektir.

Þetta var mikilvægt skref. Ingó hafði byrjað sem tíu ára drengur með byrjendabók í höndunum en var nú kominn á alþjóðlegt töframannamót.


Síðar bar töfralistin hann mun lengra. Hann hefur komið fram í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu og starfaði um tíma eingöngu sem töframaður.


Á árunum 2007–2010 bjó Ingó í Svíþjóð. Þar fékk hann meðal annars vinnu við að skemmta á skemmtiferðaskipi sem sigldi milli Gautaborgar í Svíþjóð og Frederikshavn í Danmörku.


Hann starfaði einnig á Magic Bar í Stokkhólmi, skemmtistað sem sérhæfði sig í töfrum. Þar kynntist hann sænska töframanninum Tom Stone og varð síðar góður vinur hans.

Töfrarnir leiddu Ingó líka á óvenjulega staði.


Rótari hljómsveitarinnar Depeche Mode hafði séð Ingó koma fram í sænskum sjónvarpsþætti. Þegar hljómsveitin kom til Gautaborgar hafði hann uppi á Ingó og bauð honum baksviðs. Ástæðan var að Martin Gore, einn af meðlimum Depeche Mode, hafði mikinn áhuga á töfrabrögðum. Ingó fékk því að fara baksviðs og töfra fyrir hljómsveitina.


Hann hefur einnig skemmt fyrir Alice Cooper og tengsl hans við rokkið hafa oft opnað dyr sem venjulegur töframaður hefði kannski aldrei gengið inn um.


Töfrasýning sem rokkar

Með tímanum fór Ingó að sameina báða ferla sína markvisst. Hann kallaði sýningar sínar töfrasýningar sem rokka. Tónlist Dimmu var notuð undir atriðum, hann kom fram í sömu fötum og á rokktónleikum og sýningarnar urðu dekkri og kraftmeiri en hefðbundin íslensk töfrasýning.


Ingó hefur sérhæft sig í ýmsum greinum töfralistarinnar. Hann hefur lengi sýnt spilagaldra, sleight of hand og sjónhverfingar en fór síðar að leggja sífellt meiri áherslu á hugsanalestur (e. mentalism).


Meðal þekktustu atriða Ingós er rakvélablaðaatriði þar sem hann gleypir rakvélablöð og tvinna og dregur síðan blöðin aftur upp úr munninum, þrædd á spottann.


Atriðið á sér gamlar rætur í töfrasögunni en Ingó hefur sýnt sína eigin útgáfu í áratugi.

Hann hefur einnig öðlast mikla leikni í spilum, stálhringjum (e. linking rings) og því að beygja gaffla og annan borðbúnað svo það virðist gerast með hugarorku.



Ingó leggur þó ekki aðeins áherslu á að kunna leyndarmálið. Hann hefur sagt að hver sem er geti keypt töfradót og lært einfalt bragð. Það sem skilji góðan töframann frá öðrum sé að geta látið atriðið líta út eins og raunverulegan galdur. Til þess þarf að æfa og æfa mikið.


Ingó hefur lýst því að hann sé jafnvel með spilastokk í höndunum á meðan hann horfir á sjónvarp eða talar í síma svo hann geti stöðugt þjálfað fingurna. Sum töfrabrögð geta tekið mörg ár að fínpússa. En stundum fer eitthvað samt úrskeiðis. Þá reynir á atvinnumanninn.


Ingó hefur sagt að bestu töframennirnir séu ekki endilega þeir sem gera aldrei mistök heldur þeir sem kunna að fela þau. Ef eitthvað bregst þarf töframaðurinn að geta breytt atriðinu, farið aðra leið og komið því samt farsællega í mark. Áhorfandinn veit nefnilega ekki hvernig atriðið átti að enda.


Hið íslenska töframannagildi

Ingó varð einnig virkur í félagsstarfi íslenskra töframanna og gegndi meðal annars embætti forseta Hins íslenska töframannagildis.


Hann hefur lagt áherslu á að töfralist sé raunverulegt handverk sem krefjist mikillar vinnu. Að hans mati þarf góður töframaður að vera fingralipur, fljótur að hugsa, geta leyst vandamál, hafa góða framkomu og kunna rétta tímasetningu. En hann hefur líka viðurkennt eitt annað um töframenn. Þeir eru nördar. „Skemmtilegir nördar,“ eins og Ingó orðaði það sjálfur.

bottom of page