top of page

Hið íslenska töframannagildi

Hið íslenska töframannafélag, oftast kallað HÍT af þeim sem þekkja til, var stofnað 29. febrúar 2007. Það eitt er töfrabragð útaf fyrir sig. Félagið er vettvangur töframanna og áhugafólks um töfrabrögð. Markmið félagsins er að auka áhuga fólks á töfralistinni og bæti færni félagsmanna í töfrabrögðum.


Allir töframenn sem náð hafa 18 ára aldri geta óskað eftir inngöngu í félagið. Fundir eru mánaðarlega, nema í júní, júlí og desember, þar sem rætt er um töfrabrögð og málefni þeim tengdum. Þá er hægt að sýna og horfa á töfrabrögð á öllum fundum og skiptast á hugmyndum. Félagið stendur fyrir töfrasýningum fyrir almenning og töfranámskeið erlendra töframanna fyrir félagsmenn. Teller (úr Penn og Teller), Lance Burton, Jay Sankey, Max Maven, Dan Harlan og Shawn Farquhar eru dæmi um töframenn sem hafa heimsótt fundi.


Félagar í HÍT eru einnig félagar í IBM, The International Brotherhood of Magicians. Þaðan fá félagar mánaðarleg tímarit sem kallast The Linking Ring. Í blaðinu eru greinar um töfrabrögð, töframenn, listina að koma fram og fleira, ásamt kennslu í töfrabrögðum, helstu fréttir og auglýsingar.


Einar Aron fékk undanþágu inn í félagið árið 2011, þá 14 ára gamall og búsettur á Akureyri.

bottom of page