Dai Vernon

Dai Vernon hét réttu nafni David Frederick Wingfield Verner og fæddist í Ottawa í Kanada árið 1894. Hann var kallaður prófessorinn (e. The Professor) af öðrum töframönnum og er talinn einn áhrifamesti close-up töframaður 20. aldarinnar. Sérstaklega hafði hann mikil áhrif á spilagaldra og sleight of hand. Fyrsta töfrabragðið lærði hann sem barn og sagði síðar í gamni að hann hefði „sóað fyrstu árum lífs síns“ áður en hann uppgötvaði töfrana.
Vernon flutti ungur til Bandaríkjanna og kynntist þar mörgum af stærstu töframönnum samtímans. Frægasta sagan tengist Harry Houdini, sem hafði áður kallað sig konung spilanna (e. King of Cards) og montaði sig af því að geta áttað sig á hvaða spilagaldri sem væri ef hann sæi hann þrisvar. Vernon sýndi honum sína útgáfu af Ambitious Card, þar sem valið spil er sett inn í stokkinn en birtist aftur efst. Houdini lét Vernon endurtaka bragðið aftur og aftur en tókst ekki að sjá hvernig það var gert. Vernon auglýsti sig síðar sem manninn sem blekkti Houdini (e. The Man Who Fooled Houdini).
Vernon varð þekktur fyrir að taka gömul töfrabrögð og fínpússa þau þar til hreyfingarnar urðu eins náttúrulegar og mögulegt var. Útgáfur hans af Cups and Balls, Chinese Linking Rings og fjölmörgum spilabrögðum urðu fyrirmyndir annarra töframanna og margar þeirra eru enn kenndar í dag.
Árið 1963 flutti Vernon til Los Angeles og varð fastagestur og síðar eins konar heimilistöframaður The Magic Castle. Töframenn alls staðar að komu þangað til að hitta hann, sýna honum brögð og fá ráð. Meðal þeirra sem lærðu af honum voru Michael Ammar, Richard Turner, Doug Henning, Ricky Jay, Larry Jennings og fleiri. Þannig urðu áhrif Vernons jafnvel meiri í gegnum töframennina sem hann kenndi en eigin sýningar.
Dai Vernon lést árið 1992, 98 ára gamall. Hann var brenndur og aska hans var síðar færð aftur í The Magic Castle, staðinn þar sem hann hafði eytt síðustu áratugum ævinnar og kennt kynslóðum töframanna.
