top of page

Chung Ling Soo

Chung Ling Soo fæddist í New York árið 1861 og hét réttu nafni William Ellsworth Robinson. Hann var bandarískur töframaður en kom nánast allan sinn frægasta feril fram sem kínverski töframaðurinn Chung Ling Soo. Hann klæddist kínverskum búningum, talaði ekki á sviði og hélt persónunni svo vel að margir áhorfendur töldu hann raunverulega vera frá Kína.


William hóf snemma að fást við töfra og kom ungur fram opinberlega. Hann starfaði síðar með stórum nöfnum á borð við Harry Kellar og Alexander Herrmann og öðlaðist þar reynslu af stórum sviðssýningum. Þegar hann fór að byggja upp eigin feril skapaði hann Chung Ling Soo-persónuna.


Fyrirmyndin var hinn raunverulegi kínverski töframaður Ching Ling Foo, sem hafði náð miklum vinsældum í Bandaríkjunum. Robinson tók upp svipað nafn og byggði sviðsframkomu sína að miklu leyti á kínverskum stíl. Ching Ling Foo var síður en svo ánægður og þeir urðu síðar miklir keppinautar. Árið 1905 skoruðu þeir meira að segja hvor á annan opinberlega um hvor gæti framkvæmt brögð hins.


Með William kom fram bandarísk kona hans, Augusta Pfaff, undir nafninu Suee Seen. Hún hafði áður aðstoðað Alexander Herrmann og varð síðan mikilvægur hluti af Chung Ling Soo-sýningunni.


Chung Ling Soo varð mjög vinsæll og ferðaðist víða um Bandaríkin, Bretland og Ástralíu. Eitt frægasta atriði hans var The Bullet Catch, þar sem virtist sem skotið væri úr byssu á töframanninn sem síðan stöðvaði eða „greip“ kúluna.


Atriðið varð honum að bana. Þann 23. mars 1918 bilaði búnaðurinn í sýningu í London og alvöru skot hleypti af. William særðist lífshættulega og lést daginn eftir. Þetta er eitt frægasta dauðsfall í sögu töfralistarinnar og varð til þess að bullet catch fékk enn sterkari orðspor sem eitt hættulegasta töfrabragð sem til er.


Það kaldhæðnislega var að Chung Ling Soo hafði byggt feril sinn á því að tala ekki ensku á sviðinu. Þegar skotið hæfði hann og eitthvað hafði farið úrskeiðis talaði hann loks á ensku fyrir framan áhorfendur og kallaði eftir aðstoð.

bottom of page