top of page

Baldur Brjánsson

Baldur Brjánsson var um árabil einn vinsælasti skemmtikraftur landsins og var frumkvöðull í íslenskri töframennsku. Hann er einn stofnenda Hins íslenska töframannagildis sem stofnað var árið 2007. Baldur er einnig aðili að alþjóðlegum töframannasamtökum, þar á meðal The Magic Circle í London, þar sem hann hefur meðal annars sótt sér aukna þekkingu í töfralistinni.


Áhuginn á töfrum byrjaði þegar Baldur var smástrákur á Akureyri. Fyrst voru þetta einfaldar brellur og uppátæki sem hann og vinir hans notuðu til að hrekkja fólk. Smám saman þróaðist áhuginn yfir í spilagaldra og flóknari töfrabrögð sem Baldur sýndi meðal annars í partýum. Góð viðbrögð fólks hvöttu hann til að halda áfram.


Baldur flutti frá Akureyri til Reykjavíkur í byrjun árs 1967. Þar vann hann ýmis störf en töfrarnir voru áfram áhugamálið hans. Á þessum tíma var ekkert internet og lítið framboð af töfradóti á Íslandi. Baldur lærði því mikið úr bókum og blöðum og þurfti sjálfur að leita leiða til að afla sér nýrra töfrabragða og þekkingar.


Þar hjálpaði tilviljun. Jörundur Guðmundsson, betur þekktur sem Jörundur hermikráka, vissi af áhuga Baldurs og gaf honum heimilisfang dansks manns að nafni Leo Topp Nilsen. Nilsen hafði áður verið töframaður en rak þá fyrirtæki sem framleiddi töfradót og hjálpartæki fyrir töframenn. Baldur skrifaði honum og varð einn af þúsundum viðskiptavina hans. Nilsen kom honum síðan í samband við fleiri töframenn og með tímanum eignaðist Baldur bæði töfradót og tengsl sem erfitt hefði verið að komast yfir á Íslandi. Samt ætlaði Baldur alls ekki að verða atvinnumaður.


Það breyttist að nokkru leyti á herbergi 408 á Hótel Esju í nóvember árið 1973. Þar sat Baldur með kunningja sínum, Smára Valgeirssyni, og fór að sýna honum nokkrar brellur. Meðal annars lét hann logandi sígarettu hverfa og lét litla bolta birtast. Smári varð svo hrifinn að hann vildi fá Baldur til að koma fram á skemmtun á Egilsstöðum sumarið eftir.

Baldur tók boðinu ekki mjög alvarlega fyrr en Smári hringdi aftur og tilkynnti honum að flugmiðarnir biðu hans á flugvellinum. Þá varð ekki aftur snúið.


Baldur hafði aldrei komið fram á sviði áður og var svo feiminn og stressaður að hann skalf á meðan hann æfði sig. Sjálfur sagði hann síðar að honum hefði nánast verið hent inn á sviðið. Fyrsta sýningin gekk þó nógu vel til þess að hann kom aftur fram á Egilsstöðum stuttu síðar, ásamt hljómsveitinni Pelican. Eftir það tók eftirspurnin hratt við sér.


Á næstu árum varð Baldur einn þekktasti skemmtikraftur landsins. Hann ferðaðist um landið um helgar, kom fram á árshátíðum og öðrum skemmtunum og varð fastagestur á stórum skemmtistöðum á borð við Hollywood og síðar Broadway. Á tímabili kom hann fram í Hollywood eitt kvöld í hverri viku og gat auk þess farið á þrjá eða fjóra staði sama kvöldið um helgar.


Þrátt fyrir allt þetta leit Baldur lengi á töfrabrögðin sem áhugamál og vann fullan vinnudag samhliða sýningunum. Hann sagði sjálfur að hann hefði líklega getað lifað eingöngu af töfrunum en vildi hafa öryggi í dagvinnunni. Það þýddi að hann vann á daginn, æfði ný töfrabrögð á kvöldin og ferðaðist svo um landið um helgar.


Baldur lagði mikla áherslu á að endurnýja sýninguna. Hann taldi að sama prógrammið gæti ekki gengið endalaust og fór reglulega til útlanda til að hitta aðra töframenn, læra og finna nýjar hugmyndir. En hann keypti ekki bara töfrabrögð annarra. Baldur fann einnig upp og smíðaði ýmis atriði sjálfur. Eitt þeirra varð eitt frægasta töfrabragð hans. Baldur setti skál á sviðið en sjálfur gat hann staðið tugi metra frá henni. Áhorfandi mátti ákveða nákvæmlega hvenær Baldur ætti að kveikja í skálinni. Baldur gaf þá merki og eldur blossaði upp. Hann hafði fengið hugmyndina skömmu eftir að hann byrjaði að koma fram en gekk með hana í höfðinu árum saman áður en hann fann lausnina. Þegar hann loksins frumsýndi atriðið í Hollywood hafði hann unnið að því í um sjö mánuði. Baldur sagði að líkurnar á að það virkaði á frumsýningunni hefðu aðeins verið um fimmtíu prósent. Það virkaði. Baldur neitaði alla tíð að segja hvernig hann fór að. Hann gat staðið 30–40 metra frá skálinni þegar eldurinn kviknaði og gerði atriðið jafnvel klæddur náttfötum til að útiloka hugmyndir fólks um að sérstakur búnaður væri falinn í fötunum.


Önnur þekkt atriði Baldurs voru ekki síður sérstök. Hann át rakvélablöð og dró þau síðan aftur upp úr munninum bundin saman á spotta. Hann lét dúfu breytast í kött og köttinn síðan í blómvönd, breytti pappír í peningaseðla og bjó til flösku sem virtist fyrst tóm en úr henni kom síðan mjólk, vatn og loks lifandi gullfiskar. Hann sýndi einnig vasaþjófnað og gat tekið úr, veski og fleiri hluti af fólki án þess að það tæki eftir því. Vasaþjófnaðurinn hafði þó einn ókost. Eftir að fólk hafði séð Baldur stela öllu af sjálfboðaliðum á sviðinu treysti það honum stundum ekki lengur nálægt vösunum sínum.


Síðar bætti Baldur stærri sjónhverfingum við sýninguna. Árið 1980 frumsýndi hann til dæmis atriði þar sem kona lá lárétt yfir tveimur kústum. Baldur fjarlægði annan kústinn en konan hélt áfram að svífa í loftinu.



Uppskurður með berum höndum

Frægasta atriði Baldurs varð þó til vegna þess að hann vildi sýna fram á að ekki væri allt yfirnáttúrulegt sem liti þannig út.


Á áttunda áratugnum vöktu svokallaðir andalæknar á Filippseyjum mikla athygli. Þeir sögðust geta opnað líkama fólks með berum höndum, fjarlægt mein úr líkamanum og lokað honum aftur án hnífa eða annarra lækningatækja. Fjöldi Íslendinga ferðaðist til Filippseyja í von um lækningu og sumir voru sannfærðir um að hafa orðið vitni að kraftaverkum.


Baldur hafði lesið um þessar aðgerðir og taldi að þar væri um sjónhverfingar að ræða.

Sjónvarpsmaðurinn Ómar Ragnarsson fékk myndefni erlendis frá sem sýndi slíka aðgerð og hafði samband við Baldur til að fá álit hans. Baldur sagði að það sem sæist væri einfaldlega hægt að gera með töfrabrögðum. Ómar spurði þá hvort Baldur gæti gert það sama. Baldur sagðist treysta sér til þess.


Þegar það spurðist út var ekki lengur nóg fyrir Baldur að halda því fram að þetta væri hægt. Nú þurfti hann að sanna það. Hann hafði aðeins örfáa daga til undirbúnings og sagði síðar að hann hefði eytt tveimur sólarhringum í mikla vinnu við að finna aðferð sem virkaði.


Í apríl árið 1978 framkvæmdi Baldur svo sinn eigin „uppskurð“ með berum höndum í sjónvarpssal. Atriðið leit út eins og andalækningarnar á Filippseyjum, en Baldur hélt aldrei fram að hann hefði yfirnáttúrulega hæfileika. Tilgangurinn var þvert á móti að sýna að hægt væri að búa til sömu sjónhverfingu með töfrabrögðum.


Atriðið hafði gríðarleg áhrif á feril hans. Eftir sjónvarpsþáttinn rigndi niður beiðnum um sýningar frá öllum landshlutum og Baldur sagði fólk hafa farið að líta töfrabrögðin hans öðrum og jákvæðari augum. Fjölmargir prestar úti á landi höfðu meira að segja samband við hann sérstaklega til að þakka honum fyrir að hafa sýnt hvernig hægt væri að blekkja fólk. En ekki voru allir ánægðir.


Fjölmargir úr Sálarrannsóknarfélaginu höfðu samband við Baldur og húðskömmuðu hann fyrir að halda því fram að andalækningarnar væru sjónhverfingar. Sumir höfðu mikla trú á læknunum og einn íslenskur fararstjóri lýsti því til dæmis að hafa séð lækni opna brjósthol manns, sjá hjartað slá og fjarlægja þaðan sýkta kirtla.


Í kjölfar sjónvarpsútsendingarinnar fékk Baldur jafnvel líflátshótun. Það breytti ekki skoðun hans. Baldur sagðist ekki trúa á galdra eða yfirnáttúruleg fyrirbæri nema hann fengi sjálfur ástæðu til þess. Hann þekkti of vel hversu langt væri hægt að ganga með sjónhverfingum, skynvillum, athyglisstýringu og öðrum aðferðum töframannsins. Uppskurðurinn varð eitt þekktasta atriði Baldurs og hann sýndi hann síðar meðal annars á Broadway.


Næsta kynslóð töframanna

Baldur hafði einnig mikil áhrif á yngri íslenska töframenn.


Þegar Ingólfur Ragnarsson, síðar þekktur sem Ingó töframaður, var aðeins tíu ára sá hann Baldur framkvæma uppskurðinn í sjónvarpinu. Ingó hafði þá þegar mikinn áhuga á töfrum en eftir þetta ákvað hann að hafa samband við Baldur. Hann hringdi aftur og aftur þar til Baldur áttaði sig á því að drengnum var full alvara. Baldur fór þá að leiðbeina honum og Ingó sagði síðar að Baldur hefði í raun „alið hann upp í töframennskunni“. Þeir komu einnig fram saman.


Nokkrum árum síðar leitaði annar ungur töfraáhugamaður til Baldurs. Það var Pétur Gísli Finnbjörnsson, síðar Pétur pókus. Baldur var fyrst tregur til að afhenda honum einfaldlega leyndarmál töfrabragðanna en fór síðar að leiðbeina honum, hjálpa honum að fínpússa atriðin og koma honum í samband við töframenn erlendis.


Árið 2008 skrifaði Gunnar Kr. Sigurjónsson, sem einnig er töframaður, ævisögu Baldurs. Hún fékk nafnið Töfrum líkast – Saga Baldurs Brjánssonar töframanns. Í tengslum við útgáfu bókarinnar framkvæmdi Baldur andalækningauppskurðinn í síðasta sinn á Græna hattinum á Akureyri, bænum þar sem áhugi hans á töfrum hafði byrjað áratugum áður. Fórnarlambið var að þessu sinni læknirinn Hjálmar Freysteinsson.


Baldur fékk einnig ungan töfraáhugamann til að aðstoða sig.

Hann hét Einar Aron og var tólf ára gamall (já, það er ég).



bottom of page