top of page

TÉKKLISTI


Listinn er ekki tæmandi, síður en svo, en hjálpar ykkur vonandi.


Sex mánuðum fyrir fermingu

□ Staðfesting á fermingardegi.

□ Ákveða hvar fermingarveislan verði haldin.

□ Ákveða fjölda gesta.

□ Gera fyrstu drög fjárhagsáætlunar.

□ Hefja samtal við fermingarbarnið um væntingar og óskir.

□ Safna hugmyndum um fyrirkomulag dagsins.


Þremur til fimm mánuðum fyrir fermingu

□ Setja saman gestalista.

□ Ákveða hvernig boð verða send (rafræn eða prentuð).

□ Bjóða gestum.

□ Velja tímasetningu dagsins.

□ Ákveða hvort boðið verði upp á skemmtun.

□ Skipta verkefnum milli fjölskyldumeðlima.

□ Hefja skipulag á veitingum.

□ Bóka tíma hjá ljósmyndara.


Einum til þremur mánuðum fyrir fermingu

□ Fá staðfestingar frá gestum.

□ Ganga frá veitingum.

□ Skipuleggja dagskrá veislunnar.

□ Gera drög að ræðum.

□ Ganga frá skreytingum eða útliti veislunnar.

□ Bóka tíma í hárgreiðslu (og annað ef vill).

□ Velja föt.


Tveimur til fjórum vikum fyrir fermingu

□ Endanlegur fjöldi gesta staðfestur.

□ Staðfesta tíma og staðsetningar allra aðila.

□ Ganga frá smáatriðum í dagskrá.

□ Yfirfara fjárhagsáætlun.

□ Útvega gestabók.

□ Útbúa kassa til að taka við gjafaumslögum.

□ Ganga úr skugga um að fermingarbarnið viti nákvæmlega hvernig dagurinn fer fram.


Vikan fyrir fermingu

□ Staðfesta veitingar og afhendingu.

□ Prenta dagskrá eða minnislista ef þarf.

□ Klára ræður eða ávörp.

□ Hafa fatnað og nauðsynlegan búnað tilbúinn.


Daginn fyrir og á fermingardaginn

□ Taka saman allt dót sem fer í salinn.

□ Skreyta salinn.

□ Sækja veitingar.

□ Taka fjölskyldumyndir fyrir.


Eftir fermingarveisluna

□ Ganga frá veislustað.

□ Senda þakkir til gesta.

□ Ganga frá myndum og minningum.

□ Gefa sér tíma til að rifja upp daginn með fermingarbarninu.

□ Minna fermingarbarnið á að þakka fyrir gjafirnar.

bottom of page