Sagan á bak við diskinn
Árið 2013 gaf ég út DVD-diskinn Einstök töfrabrögð, aðeins 17 ára gamall. Hér geturðu lesið söguna á bak við diskinn, útgáfuna og fólkið sem hjálpaði mér að gera hugmyndina að veruleika.

Á sextán ára afmælisdaginn minn, 23. júlí 2012, kom Unnar Erlingsson, grafíski hönnuðurinn minn, í afmæliskaffi. Hann hafði ákveðið að gefa mér heldur óvenjulega afmælisgjöf, því í stað þess að færa mér pakka hafði hann hannað tillögu að DVD-umslagi fyrir kennsludisk með töfrabrögðum. Í tölvupósti sem fylgdi gjöfinni skrifaði hann meðal annars:
„Gerði tillögu að uppsetningu á DVD diskinum þínum sem þú vonandi lætur verða af að gefa út!“
Þessi afmælisgjöf varð til þess að hugmyndin fór á flug. Ég hringdi nánast samstundis í Sindra Rey Einarsson, föðurbróður minn, sem hafði langa reynslu af kvikmyndagerð, og spurði hvort hann gæti ekki hjálpað mér að útbúa einn DVD-disk. Sindri var meira en til í það og hóaði saman vinum og kunningjum sem voru tilbúnir að leggja verkefninu lið.
Töfrabrögð fyrir hvern sem er, hvar sem er
Frá upphafi var hugmyndin að kenna töfrabrögð sem hægt væri að framkvæma með einföldum hlutum sem finnast á flestum heimilum. Ég vildi að fólk gæti horft á kennslumyndband, gripið til viðeigandi hluta og byrjað strax að æfa sig, án þess að þurfa að kaupa sérstakan töfrabúnað.
Þannig varð til diskurinn Einstök töfrabrögð, þar sem ég kenndi meðal annars töfrabrögð með böndum, sogrörum, peningum, spilum og öðrum hversdagslegum hlutum.
Upptökurnar
Upptökurnar fóru fram haustið 2012. Við fengum lánaða aðstöðu í upptökuveri Lindarinnar - kristilegrar fjölmiðlunar, þar sem sérstök leikmynd var hönnuð og sett upp fyrir verkefnið.
Allt kennsluefnið í myndverinu var tekið upp á tveimur dögum. Kvikmyndagerðarfólkið kom með eigin myndavélar og hljóðupptökutæki, en ljós og annar búnaður fengust lánaðir eða á mjög hagstæðum kjörum hjá Kukl. Fjöldi fólks lagði hönd á plóg og amma sá um veitingar fyrir hópinn.
Ég þurfti að óska eftir fríi úr framhaldsskólanum vegna upptökudags, en skólinn tók það ekki í mál. Eftir samtal við foreldra mína var ákveðið að ég myndi engu að síður mæta í upptökurnar. Ég mæli að sjálfsögðu með því að fólk sæki skólann sinn, en þetta voru sérstakar aðstæður og tækifæri sem ég vildi ekki láta fram hjá mér fara.
Auk kennslunnar vildi ég sýna hvernig töfrabrögðin virkuðu fyrir raunverulega áhorfendur. Því fengum við leyfi til að taka upp í Kringlunni, þar sem ég sýndi öll töfrabrögðin fyrir fólki sem átti leið hjá. Þær upptökur stóðu yfir í brot úr degi. Einnig var tekið viðtal við mig í Kringlunni eftir lokun, ásamt tökum utandyra, en viðtalsupptökurnar fóru fram á einum eða tveimur dögum.
Töfrasýning í stað dagsekta
Eitt skemmtilegasta atvikið úr framleiðslunni tengist búnaðinum sem við fengum hjá Kukl. Það gleymdist nefnilega að skila honum á réttum tíma og dagsektir fóru að safnast upp.
Ég fór því sjálfur og ræddi við Þorvarð Björgúlfsson, eiganda Kukl, og baðst afsökunar á mistökunum. Hann tók mér vel og sagði að fram undan væri starfsmannafögnuður hjá fyrirtækinu. Hann stakk upp á því að ég kæmi og héldi töfrasýningu fyrir starfsfólkið í stað þess að greiða dagsektirnar. Ég samþykkti það og þannig leystist málið farsællega.
Frá upptökum til útgáfu
Þótt margir hefðu lagt verkefninu lið var það Sindri frændi sem bar hitann og þungann af framleiðslunni. Hann sá um upptökustjórn, klippingu, eftirvinnslu og frágang mynddisksins. Hann á allan heiður skilinn fyrir að verkefnið skyldi klárast og fæ honum seint fullþakkað.
Ég hafði samband við nokkur fyrirtæki til að kanna verð á framleiðslu DVD-diska og samdi að lokum við Myndform. Alls lét ég framleiða á annað þúsund eintök, 1.001 til að vera nákvæmur. Framleiðsla diskanna var stærsti kostnaðarliður verkefnisins og fjármagnaði ég hana með tekjum af töfrasýningum. Að öðru leyti byggðist verkefnið að miklu leyti á vinagreiðum og velvilja fólks sem vildi styðja ungan töframann.
Þegar diskarnir voru tilbúnir fór ég sjálfur að sækja þá á gamla Volkswagen Polo bílnum mínum. Það var ekki mikið pláss í bílnum og stóð tæpt að allir kassarnir kæmust fyrir, en það hafðist að lokum.
Diskurinn kemur í verslanir
Einstök töfrabrögð kom út fyrir jólin 2013, þegar ég var 17 ára gamall. Diskurinn var meðal annars seldur í Rúmfatalagernum, flestum Nettó-verslunum landsins, á Heimkaup og í ýmsum minni verslunum. Fjöldi bókasafna keypti einnig eintök.
Það var þó hægara sagt en gert að koma disknum í sölu. Ég hafði sjálfur samband við fyrirtæki og verslanir, sendi tölvupósta, keyrði kassa á milli sölustaða og póstlagði sendingar. Ég þurfti einnig að útvega strikamerki fyrir diskinn og læra ýmislegt um það hvernig vöru er komið á markað.
Sala og markaðssetning
Salan gekk hægt, en gekk þó. DVD-spilarar voru á þessum tíma farnir að víkja fyrir nýrri tækni og því má segja að diskurinn hafi rétt náð í skottið á DVD-tímabilinu.
Ég þurfti að hafa töluvert fyrir því að selja eintökin. Auk þess að koma disknum í verslanir hafði ég samband við bókasöfn, auglýsti á Facebook, bauð diskinn með bókunum á töfrasýningum í barnaafmælum og Jóel, bróðir minn, gekk í hús til að selja hann.
Verkefninu var víða vel tekið og margir ánægðir með framtak ungs töframanns. Fyrirtæki þurftu þó eðlilega að meta hvort diskurinn væri líklegur til að seljast hjá þeim. Ég hef ekki lengur nákvæmar sölutölur, en gaf aðeins örfá eintök og flestir diskarnir seldust að lokum.
Diskurinn fékk ekki sérstaka fjölmiðlaumfjöllun þegar hann kom út, en ég fékk síðar tækifæri til að segja frá honum í viðtölum. Hann var einnig gefinn mótherjum Mosfellsbæjar í spurningakeppninni Útsvar á RÚV, en ég bjó þá í Mosfellsbæ.
Nýtt líf á Töfraskólanum
Í gegnum árin hef ég nokkrum sinnum hugsað mér að endurgera kennslumyndböndin. Tækninni hefur fleygt fram og ég hef sjálfur öðlast mun meiri reynslu sem töframaður. Það er því ýmislegt sem ég myndi gera öðruvísi í dag.
Ég ákvað þó að birta myndböndin í upprunalegri mynd. Þau eru hluti af minni sögu og mér finnst ákveðinn sjarmi fólginn í því að varðveita þau eins og þau voru gerð.
Enn í dag má finna eintök af disknum á bókasöfnum landsins. Annað slagið rekst ég líka á hann á nytjamörkuðum, þegar börnin sem áttu hann á sínum tíma eru orðin fullorðin og gömlu hlutirnir fá ný heimili.
Nú, rúmum áratug eftir útgáfuna, eru kennslumyndböndin aðgengileg öllum án endurgjalds hér á Töfraskólanum. Þannig lifir upphaflega hugmyndin áfram: töfrabrögð fyrir hvern sem er, hvar sem er.
Aðstandendur og þakkir
Fjöldi fólks kom að gerð Einstakra töfrabragða og lagði verkefninu lið með einum eða öðrum hætti. Hér eru þeir sem komu að upptökum, tæknivinnu, hönnun og öðrum þáttum framleiðslunnar.
Umsjón og kennsla
Einar Aron Fjalarsson (Einar einstaki)
Ráðgjöf
Fjalar Freyr Einarsson
Gestur
Róbert Aron Garðarsson
Upptökur
Árni Hilmarsson
Fjalar Freyr Einarsson
Héðinn Ólafsson
Jóhannes Jóhannesson
Sindri Reyr Einarsson
Lýsing
Andri Ómarsson
Jóhannes Jóhannesson
Hönnun leikmyndar
Andri Ómarsson
Uppsetning leikmyndar
Árni Hilmarsson
Hljóðupptökur
Andri Ómarsson
Fjalar Freyr Einarsson
Hljóðsetning
Magnús Kristinsson
Skiltagerð og hljóðbrellur
Sindri Reyr Einarsson
Aðstoð við skiltagerð
Hlynur Þór Jensson
Grafísk hönnun
Unnar Erlingsson
Aðstoð við klippingu
Einar Aron Fjalarsson
Tæknileg aðstoð
Andri Ómarsson
Eiríkur Ingi Böðvarsson
Aðstoð við framleiðslu og upptökur
Eva Björk Kristinsdóttir
Upptökustjórn, klipping, eftirvinnsla og frágangur á mynddiski
Sindri Reyr Einarsson
Sérstakar þakkir
Mons - Andri Ómarsson
Lindin fjölmiðlun - Mike og Sheila Fitzgerald
Kukl - Þorvarður Björgúlfsson
ARTPRO prentþjónusta - Guðni Þorbjörnsson
Augasteinar - Unnar Erlingsson
Jóel Fjalarsson
Bragi Fannberg
Dögg Harðardóttir
Halldóra Traustadóttir
Einar G. Jónasson
Upptökur fóru fram í upptökuveri Lindarinnar - kristilegrar fjölmiðlunar.
