TÉKKLISTI
Listinn er ekki tæmandi, síður en svo, en hjálpar ykkur vonandi.
Löngu fyrir brúðkaup
□ Byrjið á því að velja dagsetningu og verið viss um að uppáhalds fólkið ykkar komist þann dag.
□ Ákveðið hve miklu þið viljið verja í brúðkaupið og gerið fjárhagsáætlun út frá því.
□ Brúðkaupsferðina má undirbúa með góðum fyrirvara. Munið að athuga hvort vegabréfið sé ekki örugglega í gildi.
□ Bókið hótelherbergi fyrir brúðkaupsnóttina.
□ Bókið kirkju og prest.
□ Bókið sal og kannið borðbúnað og tæknimál.
□ Bókið ljósmyndara.
□ Bókið veisluþjónustu.
□ Bókið skemmtikrafta.
□ Bókið tónlistarfólk í athöfnina.
Fimm til sex mánuðum fyrir
□ Pantið (eða útbúið) boðskortin og sendið þau um leið og þau eru tilbúin.
□ Ef það verða börn í veislunni þarf að byrja undirbúning fyrir það. Prentið út myndir til að lita, eitthvað til að horfa á og e.t.v. bókað skemmtikraft.
□ Leitið að hárskrauti, skóm, sokkabandi, slöri, skarti og öðrum fylgihlutum.
Þremur til fjórum mánuðum fyrir
□ Kaupið fallega gestabók og góðan penna. Gaman er að láta skrifa nöfn brúðhjóna og dagsetningu á fyrstu síðuna.
□ Panta tíma í hárgreiðslu og snyrtingu.
□ Ef þið eruð ekki búin að senda boðskortin er núna tíminn til þess.
Tveimur mánuðum fyrir
□ Farið í ljós (ef vill) svo húðin nái að jafna sig.
□ Ef þið eruð ekki farin að hreyfa ykkur er það ekki seinna vænna.
□ Verið í sambandi við hljómsveit
Einum mánuði fyrir
□ Kíkið í prufutíma í hár og förðun.
□ Gangið frá hringum. Verið ánægð með þá því þið munuð bera þá um ókomna tíð.
□ Pantið æfingu í kirkjunni nokkrum dögum fyrir athöfn.
□ Raðið fólki á borð.
□ Gangið frá blómvendi og skreytingum.
Einni viku fyrir
□ Gott að kíkja í snyrtingu og annað sem þarf að gera.
□ Biðjið einhvern sem þið treystið að taka gjafirnar um kvöldið og koma heim til ykkar.
□ Gangið úr skugga um að veislustjórarnir hafi allar upplýsingar sem þeir þurfa.
□ Gott að staðfesta við alla útkeypta þjónustu um að allt stemmi.
□ Dreifið ábyrgð til vina og ættingja með það sem hægt er.
Stóri dagurinn
□ Ef þið eigið rútínu er gott að fylgja henni
□ Borðið góðan og næringarríkan morgun- eða hádegismat. Það er ekki víst að þið getið borðað ykkur södd í veislunni
□ Gefið ykkur nægan tíma til að gera ykkur til. Það er talsvert betra að allt sé klárt löngu fyrir athöfn en að vera á síðustu stundu.
Eftir brúðkaupsdaginn
□ Þakkið öllum sem lögðu hönd á plóg og aðstoðuðu við að gera daginn að því sem hann varð.
□ Þakkið öllum fyrir gjafirnar.
□ Gangið frá greiðslum við alla þjónustu.
□ Sinnið hjónabandinu, ræktið það, verið tillitsöm og elskið hvort annað skilyrðislaust. Þið getið farið á Lútherska hjónahelgi eftir nokkur ár.
