TÉKKLISTI
Það er að mörgu að huga þegar kemur að skipulagningu afmælis barnsins þíns. Hér að neðan má finna helstu atriðin en listinn er hvorki tæmandi né víst að þú þurfir að nýta þér öll atriðin. Til að listinn nýtist þér sem best er gott ef þú hefur þegar lesið upplýsingarnar sem eru hér á síðunni, s.s. um undirbúning, leiki, veitingar og annað.
Í upphafi
□ Veldu tíma og dagsetningu fyrir veisluna
□ Bókaðu afþreyingu ef þú vilt fara þá leið
□ Sendu út boðskort
□ Finndu aðstoðarfólk
□ Veldu leiki og undirbúðu þá
□ Veldu matinn
Í vikunni fyrir afmælið
□ Keyptu það sem til þarf
□ Útvegaðu kerti á kökuna
□ Hafðu samband við þá foreldra sem enn hafa ekki gefið svar um mætingu barnsins þeirra
Daginn fyrir afmælið
□ Taktu til þar sem afmælið fer fram (þar með talið baðherbergið) en ekki þrífa, það tilheyrir frágangi
□ Ef búið er að bóka okkur er gott að staðfesta bókunina hafirðu ekki heyrt frá okkur af fyrra bragði
□ Þýddu frosinn mat eða undirbúðu það sem boðið verður uppá
□ Vertu viss um að þú hafir kerti og eldfæri fyrir kökuna
Stóri dagurinn
□ Kláraðu skipulagningu afmælisins
□ Festu blöðrur við húsið og á hurðina
□ Undirbúðu eða pantaðu mat
□ Hafðu símann vel hlaðinn svo hægt sé að taka myndir
□ Settu gæludýr í annað herbergi
□ Settu upp og undirbúðu leikina
□ Dragðu andann djúpt og skemmtu þér
Eftir afmælið
□ Gangtu frá, taktu til og þrífðu vel. Það er fátt verra en hús í rúst eftir barnaafmæli
□ Hjálpaðu barninu við að þakka fyrir gjafirnar. Það skiptir miklu máli
